Bóka gistingu
Gagnlegar upplýsingar
|
Áhugaverðir staðir í nágrenni
|
- GPS-hnit N63°40,559 / V19°29,014
- Símanúmer hjá skálaverði 893 2910
Skálar
- Gistipláss í skálum eru 83 talsins
- Skála skal rýma fyrir kl. 11 á brottfarardegi.
- Innskráning á komudegi er eftir kl. 14.
- Gashellur til eldunar
- Eldunaráhöld og borðbúnaður
- Grill
- Salerni yfir sumartímann, þurrklósett að vetri.
- Sturtur (verð 500 kr.) yfir sumartímann
- Hleðsla farsíma (500 kr) hjá skálaverði möguleg
- Verð á gistingu í skála:
Almennt verð 10.500 kr. Fyrir félagsmenn í Útivist 6.500 kr. Börn yngri en 18 ára fá 50% afslátt af verði foreldris en börn 6 ára og yngri gista frítt.
Tjaldsvæði
- Tjaldsvæði við skála
- Salerni yfir sumartímann
- Sturtur (verð 500 kr.) yfir sumartímann
- Grill
- Aðstöðugjald tjaldgesta:
Almennt verð 2.000 kr. Börn 0 - 12 ára fá frítt í tjald. Félagsmenn í Útivist og börn þeirra fá 50% afslátt af tjaldgistingu.
Aðstöðugjald part úr degi
- 500 kr/mann fyrir aðgang að salernum
- 2.500 kr að auki fyrir bókun á viðveruhúsi
Kostnaðarliðir að baki aðstöðugjalds eru eftirfarandi:Þrif salerna og umhverfis, sorplosun og umhirðu sorps, losun rotþróa og tengdur kostnaður, viðhald salernisaðstöðu, úrbætur á aðstöðu og aðgengi í nærumhverfi og innheimtu- og þjónustukostnað.
|
- Gosstöðvar á Fimmvörðuhálsi
- Eyjafjallajökull
- Mýrdalsjökull
- Þórsmörk
- Útigönguhöfði
|
Lýsing
Árið 1980 hóf Útivist uppbyggingu aðstöðunnar í Básum á Goðalandi (Þórsmörk). Aðstaða á tjaldsvæðum var útbúin fyrst en næstu árin á eftir voru skálarnir tveir byggðir. Gönguleiðir við allra hæfi er að finna í nágrenni Bása; Básahringurinn er fær fyrir bæði stóra og smáa fætur, fallegt útsýni er af Réttarfelli, Útigönguhöfði er góður fyrir þá sem vilja dálítið erfiði og Hvannárgilið er sem ævintýraveröld. Gott göngukort er til sölu hjá skálaverði í Básum og á skrifstofu Útivistar. Útivist getur boðið gönguhópum upp á leiðsögn og fararstjórn um nágrenni Bása til lengri eða skemmri ferða.
360° mynd af stóra skálanum.
360° mynd af litla skálanum.
Myndir gerðar af Hermanni Valssyni, hermann.valsson@gmail.com.
Þegar ekið er í Bása er beygt út af þjóðvegi 1 rétt austan Markarfljóts inn á veg 249 sem breytist við Stóru-Mörk í F249 Þórsmerkurveg. Þeim vegarslóða er fylgt inn fyrir Álfakirkju og inn að Básum. Á þessari leið er yfir nokkrar jökulár að fara og er aðeins fært jeppum og stærri bílum. Í vatnavöxtum geta árnar orðið varasamar og er þá rétt að afla sér upplýsinga hjá kunnugum áður en haldið er af stað.
Hér má sjá myndband úr Básum og af náttúrunni í kring.
GÓÐ AÐSTAÐA FYRIR HREYFIHAMLAÐA Í BÁSUM
Vorið (2018) var unnið að því að bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða í Básum. Settir voru fláar víða, salerni með stoð og handföngum og rúmstæði á neðri hæð.
Á heimasíðu MS félagsins er fjallað um aðstöðuna og þá dásemd sem Básar bjóða upp á: Umfjöllun MS félagsins
Efni tengt Básum
Veðrið í Básum
Útivist í Básum
Skáli byggður í Básum
Básalækurinn virkjaður
Leiðarlýsing inn á Goðaland
Þjóðsögur og sagnir
