Laugavegur hraðferð

Dags:

fim. 10. sep. 2026 - sun. 13. sep. 2026

Brottför:

Kl 18:00 frá Mjódd

  • Skáli

Hraðferð um Laugaveginn er tilvalin fyrir þá sem eru í þokkalegu gönguformi og vilja fara þessa fjölförnu leið á þeim tíma þegar fáir eru á ferli. 

Farið verður með rútu í Landmannalaugar á fimmtudagskvöldi og gist í skálanum þar. Á föstudegi verður gengið um Hrafntinnusker og niður í Hvanngil þar sem er gist.

Á laugardegi er gengið um Emstrur niður í Þórsmörk þar sem gist verður í skála í Básum. Þar býður göngumanna grillveisla, varðeldur og ósvikin Básasteming.

Á sunnudegi gefst færi á göngu um Goðaland áður en lagt verður af stað heim á leið.

Verð 113.000 kr.
Félagsverð 99.000 kr.

Nr.

2609L01
  • Suðurland