Vaknandi gróður og líf í Heiðmörk - Kynslóðaganga

Dags:

sun. 7. jún. 2026

Brottför:

Eigin bílar, Hist við Náttúrufræðistofnun í Urriðaholti kl. 11

Þessi viðburður er liðinn.

Vaknandi gróður og líf í Heiðmörk - Kynslóðaganga

Heiðmörk er eitt vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og býður upp á fjölbreyttar merktar gönguleiðir í fallegu skóglendi. Kynslóðagangan í Heiðmörk snýst um að upplifa vakningu náttúrunnar – fylgjast með gróðri spretta fram, fuglalífi taka við sér og litum breytast með árstíðinni.

Farið verður kl. 11 frá Náttúrufræðistofnun í Urriðaholti yfir Vífilsstaðahraun í útjaðri Heiðmerkur í átt að Vífilsstöðum. Gengið eftir Berklastíg ef aðstæður leyfa, en einnig er möguleiki á að fara auðfarnari stíga ef það þykir henta betur.  Leiðin liggur um birkikjarr, lyngmóa og mosaþembu í hrauninu og horft verður eftir vorboðum flórunnar, reklum birkisins, sætukoppum lyngsins, blómknúppum og nýútsprungnum blómum og laufi. Handan við hraunið, í lægðinni neðan við Vífilsstaði verður horft eftir votlendistegundum við Vífilsstaðalæk og Vatnsmýri. Gengið eftir stíg samhliða Flóttamannaleið. Ef tími og áhugi er fyrir hendi er hægt að taka útdúra t.d. að tjörnunum við Vatnsmýrina, að Vífilsstaðavatni, út  og/eða Maríuhellum.

Ef fólk á þá má taka með sér plöntuhandbók og stækkunargler (eða lúpu).

Fararstjóri er Helga Davíðsdóttir og sérfræðingurinn okkar er hún Rannveig Thoroddsen plöntuvistfræðingur frá Náttúrufræðistofnun.


Vegalengd 3-5 km, Tímalengd: 1,5-2 klst.
Ferðin er ókeypis og við hvetjum til að kynslóðirnar komi saman í ferðina.
Staðsetning á Google maps

Af hverju er þetta góð kynslóðaganga?

  • Náttúran í Heiðmörk er lifandi kennslustofa fyrir unga og gamla.
  • Fjölbreyttar gönguleiðir.


Ábendingar:

  • Hafið með ykkur vatn, létt nesti og góða skó.
  • Gott að taka með fuglabók fyrir áhugasama.

Um Kynslóðagöngur Útivistar – Ókeypis dagsferðir í samstarfi við HÍN
Í rúmlega 50 ára starfi Útivistar hefur gjarnan verið blandað saman góðum gönguferðum og skemmtilegri fræðslu. Og nú efnir Útivist í samstarfi við Hið íslenska náttúrufræðifélag til skemmtilegra og fræðandi vísindaferða þar sem allir eru velkomnir. Lögð er sérstök áhersla á að þeir sem eldri eru taki með sér yngri kynslóðir og eigi skemmtilega og fræðandi stund saman. Farið er á eigin bílum á valda staði í nágrenni höfuðborgarinnar. Staðsetning er valin eftir aðstæðum og verður auglýst vel. Sérfræðingar frá HÍN verða með í för og fræða þátttakendur um undur náttúrunnar. Ferðirnar eru mjög hentugar sem fjölskylduferðir og við vekjum athygli á að ferðirnar er ókeypis og við hvetjum alla til að mæta.

Verð 3.900 kr.

Nr.

2605D01