Dags:
mið. 16. jún. 2021 - fim. 17. jún. 2021
Brottför:
Árleg sumarnæturganga Útivistar hinn 17. júní yfir Leggjabrjót. Gengið verður frá Svartagili upp með Öxará yfir hinn eiginlega Leggjabrjót að Sandvatni. Farið verður fram á brúnir Brynjudals og horft niður á Skorhagafoss í Brynjudalsá. Síðan liggur leiðin yfir Hrísháls niður í Botnsdal. Þessi ferð er góð upphitun fyrir Jónsmessugöngu Útivistar.
Vegalengd 16-18 km. Hækkun 500 m. Göngutími 6 klst.
Verð til félagsmanna kr. 7.000 og innifalið í því er fararstjórn og rúta. Ef bókað er og greitt gegnum vefsíðuna fyrir kl. 15 á föstudegi fyrir ferð er 10% afsláttur og tekur verðið hér að neðan tillit til þess. Athugið að þeir sem bóka fyrirfram hafa forgang ef pláss í rútu er takmarkað.
Til að taka þátt í ferðum Útivistar þarf að gerast félagsmaður, en þeir sem ekki eru þegar félagsmenn býðst að greiða félagsgjald kr. 8.000 og fá þá félagsskírteini og fyrstu dagsferðina í kaupbæti.