Jónsmessuganga á Fimmvörðuháls (tjald kl. 17)

Dags:

fös. 19. jún. 2020 - sun. 21. jún. 2020

Brottför:

frá BSÍ kl 17.

  • Tjald
Þessi viðburður er liðinn.

Um Jónsmessuhelgina er mikið um að vera á Fimmvörðuhálsi og í Básum. Þá er hin árlega Jónsmessuganga Útivistar yfir Fimmvörðuháls. Þessi ferð er einn af hápunktunum í starfi Útivistar ár hvert og allt kapp lagt á að gera hana ánægjulega fyrir alla þátttakendur. Lagt er af stað frá Reykjavík á föstudagskvöldi og gengið yfir Hálsinn um nóttina. Á leiðinni er stoppað á völdum stöðum og boðið upp á hressingu. Í dögun á laugardegi koma göngumenn niður í Bása þar sem tími gefst til að hvílast um stund. Um kvöldið er slegið upp grillveislu og kvöldvöku þar sem Útivistargleðin ríkir.

Fullbókað er í brottför kl. 17, en enn er hægt að bóka sig í brottför kl. 18 með gistingu í tjaldi.

Verð 31.000 kr.

Nr.

2006H01AT
  • Suðurland