Enn og aftur Vatnajökull

Dags:

fös. 3. maí 2024 - sun. 5. maí 2024

Brottför:

Brottför:  kl. 19.00 frá Hálendismiðstöðinni í Hrauneyjum.

  • Skáli

Vatnajökull heillar alltaf og ef vorið verður kalt og hagstætt til jöklaferða þá er um að gera að nota tækifærið. Ekið frá Hrauneyjum í mildri vorbirtunni sem leið liggur í hinn frábæra skála Jöklarannsóknarfélagsins í Jökulheimum. Snemma á laugardagsmorgni tökum við glímuna við jökulinn og stímum að Grímsfjalli með viðkomu á Pálsfjalli. Gufubaðið og grillið tekið af fullri alvöru. Eftir indælan nætursvefn í einum mest sjarmerandi skála á Íslandi, verður lagt af stað í morgunroðanum áleiðis heim. Hamarinn og fleiri áhugaverðir staðir skoðaðir á leiðinni, allt eftir því sem veður leyfir.

Farastjóri: Gylfi Jónu Arnbjarnarson

Verð 32.000 kr.

Nr.

2405J01