Dags:
fös. 21. jún. 2019 - sun. 23. jún. 2019
Brottför:
frá BSÍ kl. 17:00
Þessi viðburður er liðinn.
Lagt af stað frá Reykjavík á föstudagskvöldi og ekið að Skógum. Gengið yfir Fimmvörðuháls um nóttina. Á leiðinni verður stoppað á völdum stöðum og boðið upp á hressingu. Í dögun á laugardegi koma göngumenn í Bása þar sem tími gefst til að hvílast um stund. Um kvöldið verður slegið upp grillveislu, varðeldi og kvöldvöku þar sem Útivistargleðin ríkir.
Lokað hefur verið fyrir bókanir í ferðina.
Nánar um Jónsmessuferðina.