Dags:
lau. 6. jún. 2026
Brottför:
Farið er á eigin bílum og hist á bílastæðinu við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ kl 8:00
Þessi viðburður er liðinn.
Raðganga um Kóngsveg - 6. áfangi
Áfram liggur Kóngsvegurinn frá Laugarvatni austur að Miðdal. Við göngum meðfram Laugarvatnsvegi í um 5 km þar til við komum að Hlöðuvallarvegi
og Miðdalskirkju. Frá Miðdalskirkju göngum við á stígum meðfram Efstadalsfjalli alveg að Brúará en árið 1901 var byggð brú á Brúará á sama stað og áður var steinbogi yfir ána. Frá Efstadal liggur leiðin ofan byggðar að Miðhúsum. Þessi gamla alfaraleið er greinileg og mjög skemmtileg enda farið um slóðir sem fáir fara um í seinni tíð.
Vegalengd um 21 km. Hækkun óveruleg.
Farið er á eigin bílum og hist á bílastæðinu við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ kl 8:00 þaðan sem sameinast verður í bíla að lokastað göngu við Úthlíðarkirkju. Þar verða einhverjir bílar skyldir eftir og hinir bílarnir ferja mannskapinn að upphafsstað göngu við Laugarvatn. Staðsetning í Mosfellsbæ þar sem við hittumst á laugardagsmorguninn er hér: https://maps.app.goo.gl/QbcCAxDwgUESbPsz5"
Um raðgönguna um Kóngsveg 2026:
Árið 2026 verða 119 ár liðin frá ferð Friðriks áttunda konungs Danmerkur og Íslands frá Reykjavík til Þingvalla, Geysis og Gullfoss. Að því tilefni stendur Útivist fyrir raðgöngu þessa leið og verður hún farin í átta áföngum frá janúar og fram í september.
Fyrirkomulag ferðanna verður þannig að þátttakendur fara á eigin bílum og hittast við lokastað hverrar göngu. Sameinast er í bíla að upphafsstað þar sem gangan hefst.
Fararstjórar verða Hanna Guðmundsdóttir, Fríða Brá Pálsdóttir og Jóhanna Benediktsdóttir ásamt fleirum.
Verð 9.000 kr.
Félagsverð 5.900 kr.