Dags:
lau. 23. maí 2026
Brottför:
Farið er á eigin bílum og hist við lokastað göngu á Laugarvatni kl 9:00
Raðganga um Kóngsveg - 5. áfangi
Í fimmta áfanga raðgöngunnar um Kóngsveg göngum við frá Gjábakka og eftir Gjábakkaveg og að Laugarvatni. Á leiðinni má sjá Kóngsveginn hér og hvar beggja vegna við núverandi bílveg en víða liggur hann á sama stað og Kóngsvegurinn gerði áður. Rétt við veginn í Reyðarbarmshrauni er Tintron um 20 metra djúpur hraunhellir við Stóra-Dímon en fleiri hella má einnig finna á leiðinni frá Gjábakka. Frá Reyðarbarmi liggur leiðin um Barmaskarð niður á Laugarvatnsvelli. Hann hefur lengst af verið skjól fyrir skepnur en um tíma var búið í honum. Reimleikar hrelldu oft bæði menn og skepnur í hellinum. Þaðan verður síðan gengið niður að Laugarvatni.
Vegalengd 15-16 km. Hækkun 200 m.
Farið er á eigin bílum og hist við Hádegismóa kl 8:00 þaðan sem sameinast verður í bíla að lokastað göngu við Laugarvatn. Þar verða einhverjir bílar skyldir eftir og hinir bílarnir ferja mannskapinn að upphafsstað göngu við Gjábakka Staðsetning við Hádegismóa þar sem við hittumst á laugardagsmorguninn er hér: https://maps.app.goo.gl/RMdpT8LGuoiz2Wd38
Um raðgönguna um Kóngsveg 2026:
Árið 2026 verða 119 ár liðin frá ferð Friðriks áttunda konungs Danmerkur og Íslands frá Reykjavík til Þingvalla, Geysis og Gullfoss. Að því tilefni stendur Útivist fyrir raðgöngu þessa leið og verður hún farin í átta áföngum frá janúar og fram í september.
Fyrirkomulag ferðanna verður þannig að þátttakendur fara á eigin bílum og hittast við lokastað hverrar göngu. Sameinast er í bíla að upphafsstað þar sem gangan hefst.
Fararstjórar verða Hanna Guðmundsdóttir, Fríða Brá Pálsdóttir og Jóhanna Benediktsdóttir ásamt fleirum.
Verð 9.000 kr.
Félagsverð 5.900 kr.