Raðganga um Kóngsveg - 1. áfangi

Dags:

lau. 31. jan. 2026

Brottför:

Eigin bílar. Hist við Árbæjarlaug kl 9:00

Raðganga um Kóngsveg - 1. áfangi

Fyrsta ferðin í Raðgöngunni um Kóngsveg hefst við Alþingishúsið þar sem við fáum skemmtilega fræðslu um þessa merku heimsókn Friðriks konungs frá Sigurði Helga Pálmasyni, þingmanni og formanni Þingvallarnefndar. Að svo lögðu göngum við meðfram Lækjargötu við Menntaskólann í Reykjavík, þar sem ferð konungs hófst árið 1907. Gengið verður í slóð leiðangursins upp Hverfisgötu og inn Suðurlandsbraut og farið yfir gömlu brýrnar yfir Elliðaár. Þaðan verður gengið upp Elliðaárdalinn og að Árbæjarlaug.
Vegalengd 12 km. Hækkun 200.
Farið er á eigin bílum og hist við lokastað göngu í Árbæjarlaug kl 9:00 þaðan sem sameinast verður í bíla að upphafsstað.

Um raðgönguna um Kóngsveg 2026:

Árið 2026 verða 119 ár liðin frá ferð Friðriks áttunda konungs Danmerkur og Íslands frá Reykjavík til Þingvalla, Geysis og Gullfoss. Að því tilefni stendur Útivist fyrir raðgöngu þessa leið og verður hún farin í átta áföngum frá janúar og fram í september.

Fyrirkomulag ferðanna verður þannig að þátttakendur fara á eigin bílum og hittast við lokastað hverrar göngu. Sameinast er í bíla að upphafsstað þar sem gangan hefst.

 

Fararstjórar verða Hanna Guðmundsdóttir, Fríða Brá Pálsdóttir og Jóhanna Benediktsdóttir ásamt fleirum.

Verð 9.000 kr.
Félagsverð 5.900 kr.

Nr.

2601D01
  • Suðvesturland