Dags:
lau. 13. sep. 2025
Brottför:
Hist við bílastæði Framhaldsskólans í Mosfellsbæ kl. 8:30
Fjallfarar verða með ókeypis kynningarferð á Móskarðshnjúka laugardaginn 13. september.
Frítt er í ferðina og þátttakendur koma á eigin bílum. Nauðsynlegt er að skrá sig hér á síðunni.
Dagskrá:
8:30 Hittast við bílastæði Framhaldsskólans í Mosfellsbæ (FMOS).
8:40 Brottför frá FMOS. Ekið að upphafstað göngu, rétt fyrir neðan Skátaskálann Þrist (ekið fram hjá Hrafnhólum að bílastæði sem er rétt hjá ármótum Þverár og Skarðsár)
9:00 Ganga hefst (ca. tími). Gengið verður á Móskarðshnjúka (805 m) og í Svínaskarð. Förum yfir skarðið og til baka aftur. Fylgjum fornri þjóðleið milli Kjósar og Mosfellssveitar að upphafstað göngu. Gangan er ca. 10 km með ca. 1.000 metra hækkun. Áætlaður göngutími er 4-5 klst.
13:30 Að bílastæði.
14:00 Við FMOS