Fimmvörðuskáli

A_5vskali_003.jpg

Bóka gistingu

Gagnlegar upplýsingar

FÉLAGSMENN

Áhugaverðir staðir í nágrenni

  • GPS-hnit er N 63°37.320 W 19°27.093
  • Opinn 15 júní til 31 ágúst.
  • Símanúmer í skála 893 4910
  • Gistipláss í skála eru 18 talsins
  • Salerni
  • Gashellur til eldunar
  • Eldunaráhöld og borðbúnaður
  • Verð á gistingu í skála:
    • 5.500 kr. fyrir félagsmenn
    • 10.000 kr. fyrir aðra
  • Gistináttaskattur kr. 600 + VSK leggst einnig árið 2024 á hverja gistieiningu.
  • Gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi – Magni og Móði
  • Eyjafjallajökull
  • Mýrdalsjökull
  • Þórsmörk
  • Básar á Goðalandi

 

 Skilmálar

Skálinn á Fimmvörðuhálsi var endurreistur af sjálfboðaliðum úr röðum félagsmanna Útivistar árin 1990-1991. Fyrir var skáli Fjallamanna sem var orðinn ónýtur, en þeir höfðu gefið Útivist réttindi sín varðandi hann. Vert er að hafa minningu Fjallamanna í heiðri sem frumkvöðla í fjallamennsku og ferðalögum um hálendið.

Hægt er að aka að Baldvinsskála, aðeins neðar á Hálsinum, en þaðan er um 30–40 mínútna gangur upp að Fimmvörðuskála. Fimmvörðuskáli er staðsettur mitt á milli tveggja gönguleiða yfir Hálsinn; vestan við skálann er leið sem fylgir Skógaánni alla leið neðan frá Skógum, liggur upp á Hálsinn hjá vörðunum fimm og síðan áfram norður að Goðahrauni. Austan við skálann er leið sem liggur frá vaðinu á Skógaá upp að Baldvinsskála og þaðan áfram til norðurs uns hún sameinast vestari leiðinni við Goðahraun. Eykur skálinn á öryggi ferðamanna um Fimmvörðuháls en er einnig ákjósanlegur áfangastaður á göngu yfir Hálsinn. Ennfremur er hægt að halda þar til einhverja daga og fara í ferðir út frá skálanum.

Salernismálum skálans er háttað með sérstökum hætti vegna þess að útilokað er að koma fyrir rotþró og ferðamenn eru beðnir um að fara að þeim reglum sem upp eru settar. Rétt er að hafa í huga að ekki er alltaf rennandi vatn á svæðinu og síðari hluta sumars er erfitt að taka snjó til bræðslu.

Skálavörður er í skálanum frá miðjum júní og út ágúst, en utan þess tíma er skálinn lokaður.  Neyðarskjól er þó í anddyri norðan megin í húsinu (gengið inn austan megin).

Vegalengdir og hæðarmunur

úr Skógum upp í Fimmvörðuskála:

  • h.y.s. 50 m
  • vegalengd 16 km
  • göngutími 5 klst
  • hækkun 1036 m
  • h.y.s. 1086 m
 

úr Fimmvörðuskála niður í Bása:

  • h.y.s. 1086 m
  • vegalengd 13 km
  • göngutími 4,5 klst
  • hækkun -936 m (lækkun um 936 m)
  • h.y.s. 150 m

 



1 / 22

Fimmvörðuháls