Uppfærðar upplýsingar vegna krefjandi aðstæðna á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls.

31. August 2026

Uppfært 31. ágúst 2026:

Uppfærðar upplýsingar vegna krefjandi aðstæðna á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls.

Ferðafélag Íslands, Útivist og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli vilja vekja athygli ferðafólks á krefjandi aðstæðum á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls.

Undanfarin ár hefur jökullinn hopað og í kjölfarið hafa gil og sprungur opnast. Á hluta leiðarinnar milli Baldvinsskála og Fimmvörðuhálsskála hafa einnig myndast brattar brekkur og skriður þar sem áður var snjór eða jökulís.

Síðan FÍ, Útivist og Dagrenning vöruðu fólk við því að leggja af stað í göngu yfir Fimmvörðuháls hafa aðstæður skánað og færi gefist á að skoða leiðina betur.

Það hefur gefist best að ganga bláu leiðina frá Baldvinsskála upp undir síðustu brekku á hálsinn en beygja þar til vesturs og fylgja stikum sem liggja skáhalt upp brekkuna að Fimmvörðuskála. Þaðan er svo gengið áfram eftir stikaðri leið til vesturs og svo norðurs að Magna og Móða (Rauð leið) og svo áfram bláu leiðina niður í Goðaland. Einnig má í góðu skyggni ganga í austur frá Fimmvörðuskála að bláu leiðinni aftur og fylgja stikum restina af bláu leiðinni niður í Goðaland.

Við ráðleggjum fólki að kynna sér aðstæður vel áður en lagt er af stað í göngu og minnum á að góður undirbúningur og réttur útbúnaður skiptir höfuðmáli við krefjandi aðstæður.

Updated information on challenging conditions on the Fimmvörðuháls Hiking Trail

Ferðafélag Íslands (the Iceland Touring Association), Útivist, and the Dagrenning Search and Rescue Team in Hvolsvöllur would like to alert hikers and travellers to challenging conditions that have developed on the Fimmvörðuháls hiking trail.

In recent years, the glacier has been retreating, resulting in the opening of new ravines and crevasses. Steep slopes and scree have also formed along parts of the trail between Baldvinsskáli and Fimmvörðuhálsskáli, where there was previously snow or glacial ice.

Since FÍ, Útivist and Dagrenning advised against setting out on a hike across Fimmvörðuháls, conditions have improved and the trail has been inspected.

It has proven best to follow the blue route from Baldvinsskáli up towards the final slope on the ridge, but then turn west and follow trail markers that lead diagonally up the slope to Fimmvörðuskáli. From there, continue west along a marked trail and then north towards Magni and Móði craters (red route), before continuing along the blue route down into Þórsmörk. In good visibility, it is also possible to walk east from Fimmvörðuskáli to rejoin the blue route and follow the trail markers for the remainder of the route down into Þórsmörk.

We advise people to familiarise themselves thoroughly with current conditions before undertaking this hike. Good preparation and proper gear are key to a safe journey.