Vefmyndavél og veðurstöð á Fimmvörðuhálsi

05. júní 2025

Búið er að setja upp nýjar vefmyndavélar og veðurstöð á skala Útivistar á Fimmvörðuhálsi. Hér er hlekkur á stöðvarnar.

Það eru oft krefjandi veðuraðstæður á hálsinum og mikið gagn af því að geta skoðað aðstæður í rauntíma. Á sama tíma eru aðstæðurnar krefjandi fyrir tæknibúnað og vandasamt hefur verið að halda úti þessum tækjum í mesta veðravíti landsins og oft þurft að endurnýja. En er á meðan er og við vonum að þessi nýi búnaður fjúki ekki eða frjósi fastur í bráð.