Blákollur í Jósepsdal

Dags:

lau. 17. okt. 2026

Brottför:

Eigin bílar, hist í Hádegismóum og lagt af stað kl 9:00

Laugardaginn 17. október verður gengið á Blákoll sem er 532 metra hátt móbergsfell á Hellisheiði. Fjallið blasir við þegar keyrt er eftir þjóðveginum og er í virkilega fallegu umhverfi. Á toppi fjallsins er ægifagurt útsýni yfir hraunbreiður Hellisheiðarinnar, Hengilssvæðið, Reykjavík og Esjuna. Blákollur er þægilegt fjall og hentar því vel þeim sem vilja kanna nýjar slóðir á Hellisheiðinni.

Við ætlum að hittast við Morgunblaðshúsið í Hádegismóum, sjá hér: https://goo.gl/maps/rN8ZWiydgj4DWYjW8 og þeir sem vilja sameinast í bíla þar. Við ökum síðan á eigin bílum sem leið liggur að upphafsstað göngunnar en hann er við áminningarskilti Umferðarstofu þar sem bílhræjum er stillt upp á stólpa rétt fyrir ofan brekkuna austan við Litlu Kaffistofuna. Þar er hægt að aka út af veginum og leggja bílum. Sjá hér: https://goo.gl/maps/aTf97byZCDZsnMbNA

Athugið að lagt verður af stað frá Hádegismóum kl9:00 svo mætið endilega tímanlega.

Frá upphafsstað göngunnar er gengið eftir slóða og upp á Blákoll. Leiðin niður er síðan eftir vestari hlíðum fjallsins en þegar komið er niður að jafnsléttu er aftur gengið á slóða meðfram hraunjaðrinum og að bílunum aftur.

Áætluð vegalengd um 6.5 km
Áætluð hækkun um 350 metrar
Áætlaður göngutími um 3 - 3,5 klst
Gráðun ferðarinnar eru tveir skór

Reiknað er með einu nestisstoppi á leiðinni svo ekki gleyma að taka með nestið og við mælum með heitu á brúsa á þessum árstíma. Þá er einnig gott að hafa aukalagi til að henda yfir sig í nestispásunni.  Loks mælum við með að taka með sér stafi í þessa ferð. 

Fararstjóri er Fríða Pálsdóttir

Verð 9.000 kr.
Félagsverð 5.900 kr.

Nr.

2610D01