Vorferð jeppadeildar á Vatnajökul

Dags:

mið. 18. apr. 2018 - sun. 22. apr. 2018

Brottför:

kl. 08:30 frá gistiheimilinu að Smyrlabjörgum.

  • Skáli
Þessi viðburður er liðinn.

Hin stórskemmtilega árlega vorferð um Vatnajökul er ein vinsælasta ferð jeppadeildarinnar. Ferðinni er nú heitið á austanverðan jökulinn. Ferðin hefst að morgni fimmtudags hjá gistiheimilinu að Smyrlabjörgum, gisting nóttina áður er á ábyrgð hvers og eins. Ekið verður á Goðabungu og þaðan í Snæfellsskála þar sem verður gist.

Á föstudeginum verður ekið um öræfin austur af Vatnajökli, komið við í Egilsseli og Tröllakrókum og kannaðar leiðirnar á Þrándarjökul og Hofsjökul eystri. Farið verður niður Hraun yfir Eyjabakkastífluna og um Snæfellsfjallgarðinn aftur í Snæfellsskála.

Á laugardeginum verður dagurinn tekin snemma og ekið í Kverkfjöll þar sem farið verður í bað í Hveragili. Þaðan verður svo ferð haldið áfram á Grímsfjall þar sem gist verður. Sunnudagur verður notaður til heimferðar frá Grímsfjalli, hefðbundna leið um Jökulheima í Hrauneyjar þar sem ferðinni lýkur.

Verð 26.000 kr.

Nr.

1804J02