Vorferð jeppadeildar á Vatnajökul - FULLBÓKAÐ

Dags:

fim. 25. apr. 2024 - sun. 28. apr. 2024

Brottför:

kl. 08:30 frá  Smyrlabjörgum.

  • Skáli

FULLBÓKAÐ

Hin stórskemmtilega árlega vorferð um Vatnajökul er ein vinsælasta ferð jeppadeildarinnar. Ferðinni er nú heitið á austurjökulinn. Ferðin hefst að morgni fimmtudags frá Smyrlabjörgum en gisting nóttina áður er á ábyrgð hvers og eins. Ekið verður á Goðabungu og ef veður og tími vinna með okkur verður ekið um öræfin austur af Vatnajökli með viðkomu í Egilsseli og Tröllakrókum. Kannaðar verða leiðirnar á Þrándarjökul og Hofsjökul eystri. Farið verður niður Hraun, yfir Eyjabakkastífluna og um Snæfellsfjallgarðinn í Snæfellsskála, þar sem verður gist. Á föstudeginum verður dagurinn tekin snemma og ekið í Kverkfjöll þar sem farið verður í bað í Hveragili. Á laugardeginum verður svo ferðinni haldið áfram á Grímsfjall þar sem farið er í gufubað og grillað. Gist verður þar um nóttina. Sunnudagurinn verður notaður til heimferðar frá Grímsfjalli, hefðbundna leið um Jökulheima í Hrauneyjar þar sem ferðinni lýkur.

Fararstjóri:

Sveinn Sigurður Kjartansson

  • Fundur með þátttakendum verður haldinn í aðdraganda ferðar þar sem m.a. er farið yfir búnað bíla, almennan búnað, umgengni í skálum o.fl. Fundurinn verður á skrifstofu Útivistar Katrínartúni 4 þriðjudaginn 23. apríl kl 17:00
  • Nauðsynlegt er að vera með VHF rás Útivistar í öllum bílum.
  • Allir forráðamenn bíla verða að vera félagsmenn í Útivist.
  • Innifalið í verði er fararstjórn og skálagistingar. Ath að gisting nóttina fyrir upphaf ferðar er ekki innifalin.
Verð 43.000 kr.

Nr.

2404J01