Laugavegurinn - Hraðferð

Dags:

fös. 15. sep. 2023 - sun. 17. sep. 2023

Brottför:

kl. 18:00 frá Mjódd

  • Skáli

Hraðferð um Laugaveginn er tilvalin fyrir þá sem eru í þokkalegu gönguformi og vilja fara þessa fjölförnu leið á þeim tíma þegar fáir eru á ferli.

Farið verður með rútu í Landmannalaugar á fimmtudagskvöldi og gist í skálanum þar. Á föstudegi verður gengið um Hrafntinnusker og niður í Hvanngil þar sem er gist. Á laugardegi er gengið um Emstrur niður í Þórsmörk þar sem gist verður í skála í Básum. Þar býður göngumanna grillveisla, varðeldur og ósvikin Básastemming.

Á sunnudegi gefst færi á göngu um Goðaland áður en lagt verður af stað heim á leið.

Innifalið í verði er fararstjórn, rútuferðir, flutningur á farangri milli skála, allar skálagistingar og grillveisla á laugardagskvöldið.

 Fararstjóri er Kristjana Birgisdóttir

Verð 79.000 kr.

Nr.

2309L01