Everesthópur vorönn 2023

Dags:

mán. 16. jan. 2023 - lau. 27. maí 2023

Brottför:

ATH! Uppselt er í hópinn. Sendið tölvupóst á utivist@utivist.is ef þið viljið fara á biðlista.

Everest hópur Útivistar mun fara aftur af stað með nýju sniði í ársbyrjun 2023. Farið verður á þrjá jökla á tímabilinu. Áður en farið er í jöklaferðirnar verða undirbúningsgöngur á áhugaverð fjöll í nágrenni Reykjavíkur, sem eru m.a. Esjan, Skarðsheiði, Botnsúlur og Hengill.  

Hópurinn er fyrir fólk sem hefur reynslu af gönguferðum og vill ganga á fjöll að vetri til og fara í jöklaferðir að vori. Ekki er sett krafa um reynslu að gönguferðum þó það sé vissulega kostur.

Erfiðleikastig:  Göngurnar eru „miðlungs erfiðar“ í byrjun og verða síðan meir kerfjandi þegar líður á dagskrána. Hentar þeim sem eru í ágætu líkamlegu formi og vilja auka það jafnt og þétt. 

Í mörgum ferðum er gerð krafa um jöklabúnað, það er ísexi, mannbrodda, göngubelti og karabínur. Farið verður yfir notkun á jöklabúnaði og öðrum öryggisbúnaði í vetrarferðum.

Fjöldi ferða eru 10 sem skiptist í 3 kvöldferðir, 6 dagsferðir, ein helgarferð ásamt fræðslukvöldi. Heildar hæðarhækkun í ferðunum er um 8.850 metrar (hæð Mt. Everest er 8.848) og heildar vegalengd um 130 km. Dagsferðirnar eru á laugardögum og kvöldferðirnar á miðvikudagskvöldum kl. 18.

Markmið með hópnum er að bjóða upp á fræðandi og skemmtilegar göngur í góðum félagsskap.

Áskilinn er réttur að breyta dagskrá meðal annars vegna veðurs eða annarra aðstæðna. 

Umsjónaraðilar:  Ingvar Júlíus BaldurssonAuður Jónasdóttir og Steinar Sólveigarson.   

Dagskrá:

Dagur

 

Ferð

Gönguleið

Km

Hækkun (m)

Gráða

16. jan 

 Mánud.

Fyrirlestur

 Fræðslufundur

 

 

 

21. jan 

 Laugard.

Dagsferð

 Esjan

 6 

600 

2

8. feb 

 Miðvikud.

Kvöldferð

 Sleggjubeinsskarð

300 

2

25. feb 

 Laugard.

Dagsferð

 Skarðsheiðin

14 

750 

3

8. mars 

 Miðvikud.

Kvöldferð

 Esjan

500 

2

18. mars 

 Laugard.

Dagsferð

 Vestursúla í Botnssúlum

15 

1.000 

3

12. apr 

 Miðvikud.

Kvöldferð

 Skálafell

600 

2

20. apr 

 Fimmtud.

Dagsferð

 Snæfellsjökull

14 

1.000 

3

28.-30. apr 

 Föst.-Sunnud.

Helgarferð

 Tindfjöll / Tindfjallajökull

18 

900 

3

28.-30. apr 

 Föst.-Sunnud.

Helgarferð

 Tindfjöll

400 

2

13. maí 

 Laugard.

Dagsferð

 Ljósufjöll eða Hengill

15 

1.000 

3

27. maí 

 Laugard.

Dagsferð

 Eyjafjallajökull

24 

1.800 

4

     

 Samtals

128 

8.850 

 
Verð 54.000 kr.

Nr.

2300V01