Útivist

Útivist

Beint í leiðarkerfi vefsins.


  • Forsíða
  • Ferðir og dagskrá
    • Dagsferðir
    • Helgarferðir
    • Lengri ferðir
    • Myndakvöld
    • Með allt á bakinu
    • 60+ ferðir
    • Jeppaferðir
    • Útivistargírinn
    • Hópar Námskeið
    • Verð og skilmálar
    • Bóka ferð
    • Fjallabrall Útivistar
  • Fjallaskálar
    • Álftavötn
    • Básar á Goðalandi
    • Fimmvörðuskáli
    • Skælingar
    • Strútur á Mælifellssandi
    • Sveinstindur
    • Tindfjallasel
    • Verð og skilmálar
    • Bókun í skála
  • Fréttir
    • Myndir á heimasíðu Útivistar!
  • Fróðleikur
    • Leiðarlýsingar
      • Fimmvörðuháls - hraðferð
      • Fimmvörðuháls - hægferð
      • Laugavegurinn - 5 dagar - Fyrsta nótt í Landmannalaugum
      • Strútsstígur
      • Sveinstindur-Skælingar
      • Dalastígur
    • Gátlistar
      • Dagsferð
      • Bakpokaferð
      • Trússferð
      • Jeppaferð
    • Matur og næring
    • Skýringar á táknum
    • Gagnlegir tenglar
  • Myndir
    • Nýjustu myndirnar
    • Ferðir 2018
    • Ferðir 2017
    • Ferðir 2016
    • Ferðir 2015
    • Ferðir 2014
    • Ferðir 2013
    • Ferðir 2012
    • Ferðir 2011
    • Ferðir 2010
    • Myndir frá ýmsum stöðum
      • Fimmvörðuháls
      • Snæfellsnes
    • Ferðir 2019
  • Um Útivist
    • Skrifstofa
    • Félagsaðild
      • Gerast félagi
      • Afslættir til félagsmanna
      • Rafræn félagsskírteini
    • Stjórn
    • Kjarni
    • Nefndir
      • Skipulag ferða
        • Dagsferðanefnd
        • Langferðanefnd
        • Jeppanefnd
      • Skálanefndir
        • Básanefnd
        • Fimmvörðuskálanefnd
        • Strútsskálanefnd
        • Skálar að Sveinstindi, Skælingum og Álftavötnum
        • Tindfjallaselsnefnd
      • Félagslíf
        • Kaffinefnd
        • Myndanefnd
      • Aðrar nefndir
        • Fræðslu- og skemmtinefnd
        • Laganefnd
        • Skoðunarmenn reikninga
    • Lög Útivistar
    • Saga Útivistar
    • Verð og skilmálar
    • Stefnumótun Útivistar
    • Félagslíf
    • Umhverfisstefna Útivistar
    • Náttúruverndarstefna Útivistar
    • Ársrit Útivistar
    • Fararstjórar
      • Edda Sól Ólafsdóttir Arnholtz
      • Helga Davíðsdóttir
      • Tryggvi Guðmundsson
  • Fararstjórar
  • English
    • Fimmvörðuháls
    • Laugavegurinn
    • Strútsstígur
    • Sveinstindur-Skælingar
    • About Útivist
    • Other hiking tours
    • Álftavötn hut
    • Básar hut
    • Fimmvörðuháls hut
    • Skælingar hut
    • Strútur hut
    • Sveinstindur hut
    • The Solstice Hike over Fimmvörðuháls
    • Useful links

Flýtileiðir

  • Gerast félagi
  • Póstlisti
  • Hafðu samband
  • English

Tegundir ferða
  • Dags-
    ferðir

    Dagsferðir

    Ferðafélagið Útivist stendur fyrir fjölbreyttum ferðum árið um kring. Tilgangur félagsins er að stuðla að útivist fólks í hollu og óspilltu umhverfi.

    Útivist býður upp á dagsferðir, helgarferðir, sumarleyfisferðir og kvöldfgöngur með Útivistargírnum. Einnig býður jeppadeildin upp á margar mismunandi ferðir jafnt sumar sem vetur. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi allt frá léttum gönguferðum upp í erfiðar fjallaferðir að sumri og vetri fyrir vel þjálfað fólk.

    Næstu ferðir

    24. maí 2025

    Að heiman og heim - 7. leggur

    31. maí 2025

    Grasafræði - Vísindapakkinn

    7. júní 2025

    Að heiman og heim - 8. leggur

    Fleiri ferðir
  • Helgar-
    ferðir

    Helgarferðir

    Helgarferðir eru eins og nafnið gefur til kynna ferðir sem taka heila helgi. Göngur yfir Fimmvörðuháls eru klassískar helgarferðir en einnig hafa margar aðrar ferðir hjá Útivist fest sig svo rækilega í sessi að þær eru fastur liður á ferðaáætluninni. 

    Næstu ferðir

    20. júní 2025 - 22. júní 2025

    Afmælishátíð Útivistar - Fimmvörðuháls

    20. júní 2025 - 22. júní 2025

    Afmælishátíð Útivistar í Básum – Rúta og Tjald

    20. júní 2025 - 22. júní 2025

    Afmælishátíð Útivistar í Básum – rúta og skáli

    Fleiri ferðir
  • Lengri ferðir

    Lengri ferðir

    Lengri ferðir eru göngur þar sem gengið er í þrjá daga eða meira. Í þessari dagskrá má finna bæði þekktar gönguleiðir eins og Strútsstíg og Sveinstind-Skælinga, en einnig eru þarna nokkrar spennandi nýjungar. 

    Næstu ferðir

    5. júlí 2025 - 8. júlí 2025

    Strútsstígur

    5. júlí 2025 - 8. júlí 2025

    Sveinstindur - Skælingar

    9. júlí 2025 - 13. júlí 2025

    Fjölskylduferð í Strút

    Fleiri ferðir
  • Mynda-
    kvöld

    Myndakvöld

    Kaffi- og myndanefnd voru settar á stofn fljótlega eftir stofnun Útivistar. Markmið þeirra er að halda myndakvöld þar sem félagsmenn koma saman til að skoða myndir og hlýða á ferðasögur frá ferðum sem Útivist hefur staðið fyrir. Auk þess eru kynntar ferðir á nýjum slóðum. Oft eru fengnir utanaðkomandi aðilar til að kynna áhugaverð svæði.

    Við gleymum ekki maganum. Kaffi og vöfflur á boðstólum!

    Myndakvöld eru haldin fimm sinnum yfir vetrarmánuðina og njóta mikilla vinsælda. Allur ágóði af myndakvöldunum er nýttur til að efla félagið. Lengst af var hann settur í uppbyggingu aðstöðu félagsins í Básum á Goðalandi. Nú síðustu ár hefur ágóðanum verið varið í kaup og uppsetningu útsýnisskífu á Réttarfelli og glæsileg fræðsluskilti í Básum.

    Öll herlegheitin kosta aðeins 2.000 kr. Gestir eru vinsamlegast beðnir að hafa handbært reiðufé því ekki er hægt að taka við greiðslukortum.

    Næstu ferðir

    Fleiri ferðir
  • Með allt á bakinu

    Með allt á bakinu

    Hefur þig alltaf langað að prófa bakpokaferðir, en veist ekki hvar á að byrja? Eða er einfaldlega bara of langt síðan síðast og þú vilt rifja þetta upp.

    Námskeiðið „Með allt á bakinu – byrjendanámskeið í bakpokaferðum“ er þá fyrir þig!

    Hvort sem þú ert að byrja í því að ganga með allan búnað á bakinu eða hefur ekki gert það í langan tíma og vilt rifja það upp, þá færðu á þessu námskeiði þá þekkingu og reynslu sem þarf til að takast á við lengri ferðir á eigin vegum.

    Námskeiðið fer yfir grunnatriði bakpokaferðalaga með skemmtilegum fyrirlestrum og dagsferðum, þar sem þú lærir allt frá því að velja réttan bakpoka og pakka snjallt, til að tjalda, elda úti og velja leiðir í náttúrunni. Þú færð tækifæri til að prófa búnaðinn þinn í öruggu og skipulögðu umhverfi og undirbúa þig fyrir lengri ferðir, allt undir leiðsögn reynslubolta

    Fararstjórar eru Hrönn Baldursdóttir og Íris Hrund Halldórsdóttir

    Næstu ferðir

    Fleiri ferðir
  • 60+
    ferðir

    60+ ferðir

    Eldri borgarar á fjöllum

     Á undanförum áratug hefur aldurssamsetningu landsmanna breyst talsvert; börnum hlutfallslega fækkað og eldra fólki fjölgað. Í upplýsingum frá Hagstofunni kemur fram að hlutfall eldra fólks hefur aldrei verið hærra á Íslandi en nú er.

     Sumarið 2022 ákvað Ferðafélagið Útivist að bregðast við þessari þróun og bjóða uppá bækistöðva ferðir fyrir einstaklinga sem náð hafa sextugsaldri. Það er skemmst frá því að segja að ferðirnar hafa slegið í gegn þessi þrjú sumur sem þær hafa verið í boði; valinn maður í hverju rúmi.

     Bækistöðvaferð í Bása hefur verið  fastur liður öll sumrin, auk ferða í Strútsskála og Dalakofann. Gist er í tvær nætur og boðið uppá gönguferðir við allra hæfi auk þess sem sumir velja að njóta kyrrðarinnar í og við skálann. Þrír fararstjórar; Guðbjartur, Guðrún og Jóhanna, sem öll eru 60+, fylgja hópnum þannig að hægt sé að mæta óskum þátttakenda um erfiðleikastig gönguferðanna. Konur voru duglegri að mæta framan af en karlarnir hafa sótt í sig veðrið og komu sterkari inn síðast liðið sumar.Skálarnir sem gist hefur verið í, hvort heldur er í Básum, Strút eða Dalakofanum hafa ekki verið aðgengilegir öðrum gestum á meðan 60+ hópur er þar á ferð. Sameiginlegar kvöldmáltíðir, hafragrautur í morgunmat, kaffi, te og heitt súkkulaði, vöfflur og rjómi eru meðal þess sem boðið hefur verið uppá í bækistöðvaferðunum.

     Útivistarfélagar til fjölda ára og aðrir náttúruunnendur hafa verið duglegir að mæta og upplifa kunnugleg landssvæði og endurnýja vináttu eða jafnvel að stofna til nýrrar. Spil eru dregin fram og gjarnan spiluð kínaskák, einhverjir prjóna, aðrir lesa eða dunda í krossgátu, en aðallega er spjallað og hlegið. All margir hafa farið úr fyrir eigin þægindaramma í 60+ ferðunum og upplifað að geta mun meira en þeir héldu þegar lagt var af stað. Slíkir sigrar toga fólk gjarnan á ný til fjalla til að endurupplifa náttúruna og auka þol og þrek. Hvers kyns útivera er til þess fallið að styrkja líkamlega heilsu fólks og góður félagsskapur er gulls í gildi fyrir andlega næringu. Ferðafélagið Útivist er því að leggja sitt að mörkum til að bæta lífskjör þeirra einstaklinga sem velja að taka þátt í 60+ ferðum félagsins.

    Næstu ferðir

    15. júlí 2025 - 17. júlí 2025

    Bækistöðvaferð í Bása 60+

    11. ágúst 2025 - 14. ágúst 2025

    Bækistöðvaferð í Strút 60+

    Fleiri ferðir
  • Jeppa-
    ferðir

    Jeppaferðir

    Í jeppaferðum koma þátttakendur á eigin jeppum. Ferðast er í hóp undir leiðsögn fararstjóra sem hefur góða reynslu af þessari tegund ferðamennsku. Bæði er um að ræða vetrarferðir þar sem gerðar eru tilteknar kröfur um búnað jeppanna, svo og sumar- og haustferðir sem henta lítið breyttum eða óbreyttum jeppum. 

    Næstu ferðir

    1. ágúst 2025 - 4. ágúst 2025

    Sumarleyfisferð jeppadeildar

    19. september 2025 - 21. september 2025

    Fjallabak syðra, Hungurfit – Strútur

    4. október 2025 - 5. október 2025

    Bárðargata

    Fleiri ferðir
  • Útivistar-
    gírinn

    Útivistargírinn

    Hefur þig alltaf langað til að geta gengið á fjöll og/eða taka þátt í lengri göngum en ekki látið verða af því? Þá er Útivistargírinn fyrir þig! Fjölmargir hafa tekið sín fyrstu skref í útivist og fjallgöngum með Útivistargírnum þar sem saman koma nýliðar og reynsluboltar í útivistinni.

    Göngurnar henta flestum sem geta hreyft sig með góðu móti sem og nýliðum í útivist og hvetjum við einnig þá sem vanari eru göngum að taka þátt nema annað sé tekið fram. Í kvöldgöngum er farið yfir grunnatriði í útivist og gönguferðum og fjölbreytt starfsemi Útivistar kynnt þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Gönguleiðirnar eru fjölbreyttar og er tekið mið af veðri og færð hverju sinni.

    Göngurnar taka 2–4 klukkustundir og koma þátttakendur sér á staðinn á einkabílum.

    Þátttaka í göngunum er félagsmönnum og öðrum að kostnaðarlausu en æskilegt er að skrá þátttöku í hverja göngu fyrir sig í viðburði á Facebook. Kynntu þér Útivistargírinn á utivist.is, þar má finna dagskrá ásamt upplýsingum um skráningu.

    Dagskrá

    Næstu ferðir

    Fleiri ferðir
  • Hópar Námskeið

    Hópar Námskeið

    Hópastarf Útivistar

    Hópastarfið skipar stóran þátt í starfsemi Útivistar. Boðið er upp á fjölbreytta hópa þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

    Fjallabrall hefur fest sig í sessi sem gríðarlega vinsæll gönguhópur innan Útivistar síðan hann fór í gang á haustdögum 2022 og starfar af krafti á vorönn 2025

    Hópurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa einhverja reynslu af útivist og fjallgöngum. Erfiðleikastig ferða er 1-2 skór. Miðað er við að dagsferðir séu ekki meira en um 15 km og uppsöfnuð hækkun í ferðum ekki meiri en um 600 metrar.*  

    Fjallfarar munu á vorönn 2025 æfa sig fyrir göngu á Snæfellsjökul í  lok maí eða byrjun júní. Fjöldi ferða eru 10 sem skiptist í 5 kvöldferðir og 5 dagsferðir. Markmið með hópnum er að bjóða upp á fræðandi og skemmtilegar göngur í góðum félagsskap. Göngur Fjallfara eru 2 - 3 skór og eru þær frá miðlungserfiðum upp í erfiðar göngur, og munu taka mið af getustigi hópsins.  Byrjað verður á auðveldum göngum  og síðan verður erfiðleikastigið aukið jafnt og þétt. 

    Með allt á bakinu: Byrjendanámskeið í bakpokaferðum er fyrir þá sem hefur alltaf langað að prófa bakpokaferðir, en vita ekki hvar á að byrja? Eða kannski er einfaldlega bara of langt síðan síðast og þú  vilt rifja þetta upp. Námskeiðið verður alla vorönn 2025

     

    Næstu ferðir

    Fleiri ferðir
  • Fjalla-
    brall

    Fjallabrall Útivistar

    Fjallabrall er hópur fyrir öll þau sem hafa einhverja reynslu af fjallgöngum og vilja nota meiri tíma í að njóta íslenskrar náttúru. Gráðun ferðanna er 1-2 skór en í flestum ferðum er einhver gönguhækkun þó að hámarki 600 metrar. Að jafnaði eru farnar tvær ferðir í mánuði, ein dagsferð og ein kvöldferð á miðvikudagskvöldi. 

    Miðað er við að fólk fari á eigin bílum í göngurnar nema annað sé tekið fram. Í kvöldgöngunum hittist hópurinn kl. 18 en í dagsgöngunum hittist hópurinn kl. 9 (einstaka sinnum kl. 8) og svo keyrir hópurinn í samfloti að upphafstað göngu.

    Í göngunum er farið yfir grunnatriði í útivist en auk þess fá þátttakendur fá útbúnaðarlista og nánari upplýsingar um hverja göngu í sérstökum facebook hópi Fjallabralls eða með tölvupósti fyrir þau sem þess óska.

    Athugið að dagskrá getur tekið breytingum með hliðsjón af veðurspá og aðstæðum hverju sinni

    Fararstjórar eru Hanna Guðmundsdóttir, Fríða Brá Pálsdóttir og Tryggvi Guðmundsson.

    Næstu ferðir

    Fleiri ferðir


Skælingar

  • Á Skælingum
  • Á Skælingum
  • Á Skælingum.
  • Á Skælingum
  • Á Skælingum
  • Innkoma í skála
  • Eldunar aðstaða
  • Eldunaraðstaða
  • Svefnaðstaða
  • Matar aðstaða
  • Klósett
  • Á gönguleið í Skælinga
  • Á Gretti
  • Úxatindar
  • Blautulón og Gjátindur sé af Gretti
  • Eldgjá
  • Í Eldgjá
  • Steinbogi á Nyrðri Ófæru


Þú ert hér

  • Heim/

Útivist

  • Ferðafélagið Útivist
  • Katrínartúni 4
  • 105 Reykjavík
  • Sími: 562 1000
  • utivist@utivist.is
  • Opnunartími skrifstofu:
  • Mánud. til fimmtud. kl. 12-17
  • Föstudaga kl. 12-16
  • Lokað hátíðadaga um Páska
  • Vsk númer 23533

Póstlistinn

Skráðu þig og fáðu vikuleg fréttabréf um það sem er á döfinni hjá félaginu.

Skráning á póstlista

Ferðaáætlun

Ferðaáætlun Útivistar 2025 er komin út. Kynningarblað fyrir áætlunina verður sent félagsmönnum í pósti og í dreifingu í ýmsa vel valda staði. Ferðir í áætluninni er hægt að skoða með lýsingum hér á vefnum. Hér er hægt að skoða blaðið okkar á PDF formi og hér er hægt að fletta blaðinu rafrænt.

Fylgstu með okkur

  • Við erum á Facebook
  • RSS straumur
Þessi vefur keyrir á WebMaster vefumsjónarkerfi