Dags:
lau. 2. sep. 2023
Brottför:
kl. 09:00 frá Mjódd.
Ekið upp á Hellisheiði að vegamótum að Ölkelduhálsi. Lagt af stað frá Ölkelduhálsi og gengið yfir gjallgíginn Tjarnarhnúk á leið um Lakaskarð á Hrómundartind. Fjallsbrúnin er mjó og því getur verið ögrandi að horfa niður með hlíðum fjallsins. Vegalengd 7-8 km. Göngutími 4 klst. Hækkun 200 m.
Innifalið í verði fararstjórn og rúta.