Dags:
lau. 26. apr. 2025
Brottför:
Hist við vesturenda gömlu Þjórsárbrúar
Þessi viðburður er liðinn.
Að heiman og heim – afmælisraðganga
Fimmti leggur: Frá Selfossi að gömlu Þjórsárbrú
Fimmti áfangi raðgöngunnar frá Reykjavík í Bása. Nú er gengið frá Selfossi að gömlu Þjórsárbrú. Haldið frá Selfossi og norður að Hvítá, henni fylgt til austurs og svo yfir að gömlu Þjórsárbrú. Ef austanáttin verður stíf munum við snúa ferðinni við. Þessi leggur er um 25km.
Hjarta Útivistar slær í Básum á Goðalandi í Þórsmörk. Útivist byggði fyrsta skála sinn þar um 1980 og hafa félagar átt þar ófáar gleðistundir við leiki og störf. Árið 1990 var farin raðganga frá Reykjavík í Bása sem enn er í minnum höfð. Og nú á 50 ára afmæli Útivistar ætlum við að endurtaka leikinn. Áfangarnir eru tíu. Við hefjum leik í janúar og síðasta gangan endar í Básum á afmælishátíð félagsins 21. júní. Fyrirkomulagið verður þannig að farið verður á eigin bílum og safnast saman við endastöð göngunnar. Sameinast í bíla og ekið að upphafsstað. Verði er haldið í algjöru lágmarki og vonum við að sem flestir gangi með okkur að hluta eða alla leið. Leiðarlýsing og áfangar miðast við aðstæður og geta breyst.
18.janúar
|
Skrifstofa Útivistar í Rauðhóla ca 12 km
|
15.feb
|
Rauðhólar í Litlu kaffistofu
|
15.mars
|
Litla kaffistofa í Hveragerði
|
12.apríl
|
Hveragerði - Selfoss
|
26.apríl
|
Selfoss - Þjórsárbrú
|
10.maí
|
Þjórsárbrú - Hella
|
24.maí
|
Hella - Hvolsvöllur
|
7.júní
|
Hvolsvöllur - gamla Markarfljótsbrúin
|
14.júní
|
Markarfjlót - Gígjökull
|
21.júní
|
Gígjökull - Básar
|
Verð 7.000 kr.
Félagsverð 4.500 kr.