Þrettándastuð í Þórsmörk: Jeppa- og gönguskíðaferð

Dags:

lau. 4. jan. 2025 - sun. 5. jan. 2025

Brottför:

Kl. 10:00 frá Hvolsvelli

  • Skáli

Hvað er betra en að enda jólin í Básum á Goðalandi og fagna með því nýbyrjuðu ferðaári?
Þórarinn Eyfjörð er fararstjóri í þessari skemmtilegu ferð og eitt er víst að gítarinn verður með í för (a.m.k. tveir). Brenna, flugeldar, áramótasöngvar og kvöldvaka.

Farastjóri: Þórarinn Eyfjörð

Verð 22.000 kr.
Félagsverð 16.000 kr.

Nr.

2501J01
  • Suðurland