Fjallabrall - Vorönn 2024

Dags:

mið. 17. jan. 2024 - mið. 5. jún. 2024

Tími:

Fjallabrall hefur fest sig í sessi sem gríðarlega vinsæll gönguhópur innan Útivistar síðan hann fór í gang á haustdögum 2022.

Hópurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa einhverja reynslu af útivist og fjallgöngum. Erfiðleikastig ferða er 1-2 skór og miðað er við að dagsferðir séu ekki meira en um 15 km og hækkun í ferðum ekki meiri en um 500 metrar. Gengið er 2 sinnum í mánuði að meðaltali, ein kvöldferð og ein dagsferð.

Miðað er við að fólk fari á eigin bílum (nema í Síldarmannagötur þar sem verður farið í rútu). Í kvöldgöngunum hittist hópurinn kl. 18 en í dagsgöngunum hittist hópurinn ýmist kl.8 eða kl. 9, sameinast í bíla og svo keyrir hópurinn í samfloti að upphafstað göngu.

Í ferðunum er aðal áherslan á að öllum líði vel. Allir eiga að geta notið sín í hópnum og mikið er lagt upp úr því að njóta útiverunnar saman. Þátttakendur fræðast um ýmsa hluti tengda göngum og útivist auk þess sem lagt er upp úr því að deila fróðleik tengdum svæðinu sem ferðast er um.

Innifalið í skráningu er fararstjórn í allar ferðir og rúta í ferð um síldarmannagötur. Tjaldsvæði í helgarferð er ekki innifalið, heldur er það greitt á staðnum.

 Fararstjórar eru Fríða Brá Pálsdóttir, Hanna Guðmundsdóttir og Edda Sól Ólafsdóttir.

17.janúar

Kvöldferð

Kýrskarð og Kúadalir

4.febrúar

Dagsferð

Sveifluháls og Stapatindar

21.febrúar

Kvöldferð

Reynisvatn og nágrenni

9. mars

Dagsferð

Alpaferð í Mosfellsheiði

20. mars

Kvöldferð

Fossárdalur

13.apríl

Dagsferð

Dagsferð á þingvelli

24.apríl

Kvöldferð

Stóra Reykjafell

4.maí

Dagsferð

Vitaleið 1. leggur

18.maí

Dagsferð

Síldarmannagötur - opin ferð hjá Útivist

5.júní

Kvöldferð

Þríhnúkar og Tröllafoss

14.- 16. júní

 Helgarferð Þakgil og Mýrdalur ATH! Gist í tjöldum. 

Athugið að dagskrá getur tekið breytingum með hliðsjón af veðurspám og aðstæðum að hverju sinni.

Verð 45.000 kr.

Nr.

2400B01B