Dags:
lau. 9. des. 2023
Brottför:
kl. 10:00 frá Mjódd.
Sameinast í bíla hjá Mjódd og ekið á upphafsstað göngunnar. Gangan hefst við gamla félagsheimilið við Klébergsskóla. Gengið er með ströndinni út á Kjalarnestá og til baka. Vegalengd 12 km. Göngutími 6 klst. Hækkun óveruleg.
Innifalið í verði er fararstjórn.