Sumarferð jeppadeildar Útivistar þetta árið var farin um svæðið sem í almennu tali er kallað Fjallabak. Það er sunnlenskt heiti, eðlilega, þar sem þetta er svæðið að baki hálendisbrúna sunnlensku sveitanna austanverðra, þ.e. austan Kjalar og Sprengisandssvæðisins. Ég læðist í kringum þessa skilgreiningu eins og köttur í kringum