Landspjöll að Fjallabaki

24. janúar 2012

Nokkrum félögum í Útivist var nokkuð brugðið á leið sinni í Dalakofann um síðustu helgi þegar við þeim blöstu bílför all víða utan vega með tilheyrandi náttúruspjöllum.  Fanney Gunnarsdóttir birti myndir af förunum á samskiptavefnum Facebook og hafa þær vakið mikla athygli.  Í kjölfarið sendu Þórarinn Eyfjörð formaður Útivistar, Hafliði S. Magnússon formaður Ferðaklúbbsins 4x4 og Elvar Árni Lund formaður Skotvís frá sér yfirlýsingu þar sem þessi umhverfisspjöll eru fordæmd harðlega.  Yfirlýsing formannanna er hér að neðan.

 

Yfirlýsing vegna náttúruspjalla að Fjallabaki

Ferðaklúbburinn 4x4, Útivist og Skotvís fordæma harðlega umhverfisspjöll af völdum ólöglegs aksturs utanvega sem fréttir hafa borist af í dag og í gær á samskiptavefnum Facebook.

Hópur frá Útivist á leið í Dalakofann að Fjallabaki sá á leið sinni um Fjallabaksleið syðri verulega ljót umhverfisspjöll eftir utanvegakstur.  Þær skemmdir sem þarna hafa verið unnar eru víða óbætanlegar. Athæfið ber með sér algjört virðingarleysi við náttúru svæðisins og tillitsleysi við aðra ferðamenn sem vilja njóta þess að ferðast um okkar fallega land. Háttarlag sem þetta er algerlega ólíðandi og til skammar fyrir þá sem þarna hafa verið á ferð.

Það er ríkjandi viðhorf meðal félagsmanna okkar og meginþorra ferðafólks á hálendinu að náttúruna beri að umgangast af virðingu og varkárni og gæta þess að fremsta megni að skilja hvergi eftir sig ummerki.  Þetta á við um langflesta, án tillits til tilgangs ferðanna eða ferðamáta og þetta er eitt af megin gildum þeirra félagasamtaka sem við stöndum fyrir.  Í samfélagi okkar eru alltaf einhverjir sem sýna af sér óábyrga hegðan hvar sem þeir koma og því miður birtist það einnig í umgengni þessara einstaklinga á hálendinu.

Félögin berjast fyrir hagsmunum ferðafólks sem sýnir ábyrgð í umgengni við náttúru Íslands. Þeir ökumenn sem lítilsvirða landið á þann hátt sem myndirnar sýna hafa með gerðum sínum spillt fyrir málstað þeirra sem ferðast um landið með ábyrgum hætti. Félögin vilja að það komi skýrt fram að svona umgengni er með öllu ólíðandi og hvetur félagsmenn sína til að berjast gegn ólöglegum utanvegaakstri hvenær sem þeir verða vitni að slíku.

 

Nánari upplýsingar:
Þórarinn Eyfjörð, formaður Útivistar, sími 893 9879
Hafliði Sigtryggur Magnússon, formaður Ferðaklúbbsins 4x4, sími 896 7477
Elvar Árni Lund, formaður SKOTVÍS, sími 693 3518