Fimmvörðuháls - Hægferð - FULLBÓKAÐ

Dags:

fös. 5. júl. 2024 - sun. 7. júl. 2024

Brottför:

frá Mjódd kl. 09:00

  • Skáli

Sendið tölvupóst á utivist@utivist.is ef þið viljið að fara á biðlista. 

Gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls er mörgum kær, enda ekki óalgengt að fyrstu kynnin af útivist séu í Fimmvörðuhálsgöngu. Í þessari ferð er lögð áhersla á að hafa rúman tíma í gönguna þannig að hægt sé að njóta náttúrunnar í rólegheitum. Lagt af stað að morgni dags á föstudegi og gengið frá Skógum á Fimmvörðuháls og gist þar í skála Útivistar. Á laugardegi verður gengið í Bása og gist þar seinni nóttina. Á sunnudegi verður farið í létta göngu á Goðalandi áður en haldið er heim á leið. Athugið að farangur er trússaður í Bása en ekki er hægt að keyra í Fimmvörðuskála og því þarf að bera svefnpoka og mat fyrir fyrsta sólarhringinn. 

Innifalið í verði er fararstjórn, rútuferðir, flutningur á farangri í Bása, skálagisting og grillveisla á laugardagskvöldið.

Almennar upplýsingar um Fimmvörðuhálsferðir Útivistar og útbúnaðarlisti.

Fararstjórar eru Guðrún Frímannsdóttir og Helga Harðardóttir

Verð 49.000 kr.

Nr.

2407H01