Hornstrandir bækistöðvarferð frá Hornvík - FULLBÓKAÐ

Dags:

fös. 12. júl. 2024 - mán. 15. júl. 2024

Brottför:

  • Tjald

Fullbókað, sendið póst á utivist@utivist.is ef þið viljið skrá ykkur á biðlista. 

Siglt frá Bolungarvík í Hornvík þar sem settar verða upp tjaldbúðir og gengið út frá þeim.

Farið verður um Hornbjarg og Hornbjargsviti í Látravík heimsóttur. Gengið verður um einstigi í Hvannadal. Þá verður farið um Rekavík bak Höfn, Atlaskarð og í Hælavík á æskuslóðir Jakobínu Sigurðardóttur og Þórleifs Bjarnasonar og e.t.v. lesið úr minningabókum þeirra.

Bátur sækir farangur en hópurinn gengur um Hafnarskarð í Veiðileysufjörð og hittir á bátinn þar. Hámarksfjöldi 20 manns.

Þátttakendur koma sér sjálfir á upphafstað í bátinn.

Fararstjóri er Steinar Sólveigarson

Innifalið er sigling, fararstjórn og flutningur á farangri.  Gist er í eigin tjöldum.

Verð 55.000 kr.

Nr.

2407L08