Álftavötn
Húsið í Álftavötnum var endurreist af sjálfboðaliðum Útivistar árið 2001. Það hafði ekki verið notað af gangnamönnum frá því Hólaskjól var reist. Góður jeppavegur nær langleiðina að húsinu, en ganga þarf síðustu 2-300 metrana. Fyrir vikið ríkir þar mikil kyrrð og friður og einstök fegurð. Unnendur ósnortinnar fjallafegurðar geta dvalið langtímum saman á hlaðinu og tilbeðið útsýnið og fegurðina. Vinsæl reiðleið liggur um hlaðið og hefur verið reist gerði norðan við húsið, þar sem

Básar á Goðalandi
Fljótlega eftir stofnun Útivistar var farið að huga að byggingu eigin skála í Þórsmörk. Að ráði varð að byggja á Goðalandi. Þar með væri einn skáli framan við Krossá og myndi það auka öryggi, auk þess sem það auðveldaði aðgang að stórkostlegu göngulandi. Básar höfðu fram að því verið nánast ónumdir, aðeins smalar og einstaka heimamenn undan Eyjafjöllum og af Rangárvöllum þekktu þessa einstöku paradís. Stóri skálinn í Básum var byggður á árunum 1980

Dalakofinn
Dalakofinn er rétt norðan Laufafells í nágrenni Reykjadala að Fjallabaki og er sérlega vel staðsettur í þessari stórkostlegu náttúru. Eigendur Dalakofans er Stolzenwald fjölskyldan, en Rúdolf Stolzenwald sem upphaflega byggði skálann árið 1971 var frumkvöðull í hálendisferðum og ferðaðist mikið á vélsleðum og jeppum um þetta svæði. Útivist og börn Rúdolfs sem öll eru félagsmenn í Útivist gerðu með sér samkomulag um endurbyggingu skálans og lauk þeirri endurgerð núna í sumar.

Fimmvörðuskáli
Skálinn á Fimmvörðuhálsi var endurreistur af sjálfboðaliðum Útivistar 1990-1991. Fyrir var skáli Fjallamanna sem var orðinn ónýtur, en þeir höfðu gefið Útivist réttindi sín varðandi hann. Vert er að hafa minningu Fjallamanna í heiðri sem frumkvöðla í fjallamennsku og ferðalögum um hálendið. Hægt er að aka að Baldvinsskála, aðeins neðar á Hálsinum, en þaðan er um 30 – 40 mínútna gangur að Fimmvörðuskála, sem stendur á háhálsinum, skammt vestan hinnar stikuðu slóðar milli Skóga

Skælingar
Skáli Útivistar í Stóragili á Skælingum var endurbyggður af Útivistarfélögum 1996-1997, en þar var fyrir gamall gangnamannakofi sem Skaftártungu-bændur voru hættir að nota. Umhverfið er stórkostlegt en stórir hraundrangar sem minna einna helst á lystigarð eru í næsta nágrenni. Frá skálanum er stutt ganga í Hólaskjól, en ákjósanlegar dagsgöngur eru m.a. á Uxatinda eða Gjátind. Torfær akleið er frá vegi að Gjátindi að skálanum. Húsið er kynt með litlum olíuofni og er búið dýnum

Strútur á Mælifellssandi
Skálinn var byggður haustið 2002 og er fullbúinn með olíukyndingu, eldunar­aðstöðu og vatnssalerni. Aðkoma bifreiða er frá Mælifellssandi en ekinn er jeppa­slóði til norðurs er liggur frá Syðri-Fjallabaksleið við vestanvert Mælifell. Frá skálanum má stunda dagsgöngur um mjög spennandi svæði. Af einstökum stöðum má nefna Rauðabotn, Hólmsárlón, Strútslaug og Torfajökul. Skálinn er ákjósanlegur áningarstaður þeirra sem eru að koma gangandi frá Álftavötnum á leið í Hvanngil eða Emstrur. Svefnpláss er fyrir 26. GPS staðsetning

Sveinstindur
Skálinn við Sveinstind er suðaustan við fjallið. Aðkoma bifreiða er frá slóða að Langasjó en að skálanum er fylgt stikuðum slóða vatnamælingamanna til austurs. Fyrri hluta sumars geta verið sandbleytur í slóðanum. Gönguleið hefur verið stikuð frá akslóða að Langasjó að skálanum og einnig hefur verið stikuð gönguleið á tindinn frá suðvestri. Frá skálanum er þriggja tíma ganga á tindinn og til baka. Útsýni af Sveinstindi lætur engan ósnortinn, þar blasir Langisjór við í