Velkomin að myndasögum Útivistar
Hér er að finna myndir, ferðasögur og frásagnir úr starfi félagsins. Ferðasagan er vettvangur fyrir þá sem ferðast með Útivist eða taka annan þátt í starfi félagsins að senda inn myndir og frásagnir og gefa þannig öðrum hlutdeild í ánægjulegri ferð, eða starfi . Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu. Smelltu hér ef þú sérð ekki myndirnar eða ef þú færð ekki stærri myndir.
Þeir sem hafa áhuga á að senda myndir úr ferðum, sem birta má á heimasíðu Útivistar eru vinsamlega beðnir um að senda þær á myndirutivist@gmail.com
Ef myndasöfnin birtast ekki er það líklega vegna þess að það vantar nýjustu útgáfu af Macromedia Flash Player sem fæst ókeypis á macromedia.com.
_______________________________________________________________________
03. apríl 2012
Þann 25. mars var gengin hin árlega afmælisganga Útivistar á Keili. Fyrsta dagsferð ferðafélagsins Útivistar var farin á Keili 6. apríl 1975. Síðan er þessi hefð að ganga á Keili sem næst stofndegi félagsins, en það var stofnað 23. mars 1975. Það viðraði miðlungi vel á göngumenn í þetta sinn.
23. febrúar 2012
Jeppadeild Útivistar hélt í Strút 18. febrúar.
Farið var snemma á laugardagsmorgni fra Reykjavík, stefnan var tekin á Sólheimajökul og yfir Mýrdalsjökul í hinn glæsilega skála Strút og gist þar. Umhverfi Strúts á Mællifellssandi er draumaveröld fyrir vetrarferðamennsku jeppans, jeppamannsins og -konunnar. Snjóalög jafnan mikil og
13. febrúar 2012
16 manna hópur lagði af stað í hina árlegu áramótaferð í Bása að morgni föstudagsins 30. desember 2011 þrátt fyrir að veðurspáin lofaði nú ekki mjög góðu. Ferðin sóttist ágætlega á þjóðvegi 1 og fararstjórinn tilkynnti síðasta „postulínsstopp“ á Hvolsvelli um ellefuleytið, aðeins var komið við á flugeldasölunni þar í
02. febrúar 2012
Fimm gönguskíðamenn mættu á BSÍ síðasta sunnudagsmorgun janúarmánaðar til að fara í Útivistargönguskíðaferð. Jói rútubílstjóri var sendur heim og mátti hann kúra áfram en fimmmenningarnir fóru í skíðaferð á einkabílum. Vangaveltur voru um hvert átti að fara, á Mosfellsheiði eða Hellisheiði og gátu fimmmenningarnir ekki ákveðið sig þar til einn
31. janúar 2012
Eftir átta ár í hjólarækt var komið að hundruðustu hjólaferðinni annan laugardag í janúar. Fjórir hjólamenn mættu í Elliðaárdalinn á hjólinu sínu. Það var fljúgandi hálka, grenjandi rigning og hyldjúpir pollar. En þessir fjórir voru vel útbúnir, á negldum dekkjum, með hjálm og í stígvélum sem veitti ekki af við
29. janúar 2012
11 manns mættu á BSÍ til að fara í fyrstu gönguskíðaferð ársins. Sæmundur
keyrði hópinn upp í Bláfjöll en þurfti að stoppa tvisvar á leiðinni til að
taka upp fjóra puttalinga. Við Suðurgil spenntu gönguskíðamenn skíðin undir
og lögðu af stað inn í smá þoku. Færðin var
08. janúar 2012
Hópurinn Einn og hálfur Everest hélt á Heiðarhorn í nóvemberlok.
Guðbjartur Guðbjartsson sendi myndirnar.
06. desember 2011
Hópurinn Einn og hálfur Everest hélt á Hátind Esju í októberlok.
Guðbjartur Guðbjartsson sendi myndirnar.
04. desember 2011
Hópurinn Einn og hálfur Everest hélt á Heklu á laugardagsmorgni í október. Snjór var yfir öllu en bjart framan af. Þegar líða tók á daginn dimmdi aðeins yfir en ekki það mikið að það hefti för.
Guðbjartur Guðbjartsson sendi myndirnar.
01. desember 2011
Garparnir í hópnum Einn og hálfur Everest skelltu sér á Högnhöfða 5. nóvember. Gengið var upp með Brúarárskörðum og þá upp á Högnhöfða.
Guðbjartur Guðbjartsson sendi myndirnar