Hjólaræktin

Hjólaræktin er yngsta deildin innan Útivistar, rétt að verða fimm ára. Hér sameinast bæði  byrjendur og reyndir reiðhjólamenn í leit að skemmtilegum hjólaferðum. Einu sinni í mánuði er farið í hjólatúr. Fólk og hjól hittast við Toppstöðina á bökkum Elliðaár. Stundum byrjar hjólaferðin þar og er þá hjólað á höfuðborgarsvæðinu. Það hefur verið hjólað  upp í Heiðmörk, út að Gróttu og einu sinni voru Bessastaðir sóttir heim. Í hinum ferðunum sameinast fólk í bíla og er keyrt út í sveit og hjólað þar. Ferðin inn í Bása er mjög vinsæl. Þá eru bílar skíldir eftir við Stóru-Mörk og hjólað þaðan. Í maí var gott veður og lítið vatn í ánum. Það var svo lítið að göngubrýrnar voru ekki notaðar að þessu sinni heldur var mesta sportið að reyna að hjóla yfir árnar án þess að stoppa í miðri á eða detta (sem tókst nú reyndar ekki alltaf.) Gott var að komast í afslöppun í Básum og grilla góðan mat. Flestar ferðir eru um 30-35 km langar en í einni ferðinni var athugað hvort þol og þrek  reiðhjólamannanna dygði ekki í mun lengri ferð. Því var gerð tilraun í september til að hjóla Hvalfjörðinn. Til öryggis fylgdi bíll hópnum. Bílar voru skíldir eftir við göngin og hópurinn ferjaður í gegnum þau.  Síðan var hjólað gamla hringveginn. Það hefur sjaldan verið svo fallegt veður í hjólaræktinni, heiðskírt, sólskín, úrkomulaust og næstum því logn. Það var skemmtilegt að hjóla leið sem maður hefur oft keyrt, þá ber ýmislegt fyrir auga sem maður hefur ekki sést fyrr. Það var stoppað reglulega á leiðinni, til að safna hópnum saman, til að skoða og njóta og ekki síst til að hvíla rasskinnarnar því það vildi enginn gefast upp og þiggja far heldur luku allir ferðinni sem var rúmlega 60 km.
Allir, ungir sem gamlir, eru velkomnir í hjólaræktina og þátttaka er án endurgjalds. Eins og í Útivistarræktinni er enginn fararstjóri í ferðum og eru allir á eigin ábyrgð.

Myndir eru úr ferðinni frá því í september 2005. 

 
 
 
 
 


 


 



Hjólaræktin - ferðir
Hjólaferð
11.2.- Hjólaræktin
Hjólaferð
9.3.- Hjólaræktin
Hjólaferð
14.4.- Hjólaræktin
Reykjanes – dagsferð
11.5.- Hjólaræktin
Básar í Goðalandi – helgarferð
19. - 20.5.- Hjólaræktin