|
|
|
Ferðafélagið Útivist
Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími: 562 1000 Fax: 562 1001 utivist@utivist.is webmaster@utivist.is |
Búið er að ákveða og merkja gönguleiðina í gegnum eldstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi. Gönguleiðin er ágætlega greiðfær og liggur þannig að gott tækifæri gefst til að skoða eldstöðvarnar.
Leiðin var ákveðið eftir könnunarleiðangur sem nokkrir Útivistarfélagar fóru á hálsinn ásamt fulltrúa frá Rangárþingi eystra og var tillaga hópsins samþykkt á fundi sem Umhverfisstofnun hafði frumkvæði að. Leitast var við að finna leið sem hefði lágmarks röskun í för með sér, en um leið gæfi fólki gott tækifæri til að skoða þá náttúru sem þarna er. Jafnframt að slysahætta væri ekki mikil, en eitthvað hefur verið um það síðustu vikur að göngufólk á Fimmvörðuhálsi hafi slasað sig á að brölta í gegnum úfin hraun. Hin nýja gönguleið á hálsinum liggur nokkuð vestan við leiðina eins og hún lá fyrir gos. Ef gengið er frá Skógum í Bása er beygt til vesturs u.þ.b. þar sem byrjar að sjást til eldstöðvanna. Gengið er að Magna (eystra fellinu) og niður á milli eldstöðvanna við norðuröxl fellanna. Síðan liggur leiðin yfir slétt og gott helluhraun og upp Bröttufannarfell. Hægt er að fá GPS feril af leiðinni hjá Útivist, netfang utivist@utivist.is