Í tilefni af 30 ára afmælisári Útivistar er boðið upp á   
       eftirfarandi ferðir:







DAGSFERÐIR

20.3. Sunnudagur.  Keilir, 378 m  
Brottför kl. 10:30.
Fyrsta ferð Útivistar eftir stofnun félagsins 1975 var gönguferð á Keili. Á hverju ári hefur verið haldið upp á afmælið með því að ganga á fjallið.  Farið frá Höskuldarvöllum yfir hraunið að fjallinu. Þátttakendum verður boðið upp á veitingar í ferðinni.  Vegalengd 7 - 8 km.  Hækkun 200 m.  Göngutími 4 tímar. Verð 2100/2500 kr. 


27.8. Laugardagur. Afmæli í Básum 
Brottför kl. 08:30. Dagsganga í Básum á Goðalandi.   Verð 3500/4000. 

                        
HELGARFERÐIR
26.8. - 28.8.  Fimmvörðuháls frá öðru sjónarhorni 
Brottför kl 20:00. 0508HF05 
Nýstárleg ganga yfir Fimmvörðuháls. Haldið inn í Bása á föstudegi.  Á laugardagsmorgni verður ekið inn í Drangshlíðardal og gengið með Skógaá að vestan, yfir Fimmvörðuháls og um Hvanngil í Bása. Þar verður grill, kvöldvaka og skemmtun fram á nótt.
Verð m.v. tjald í Básum 5000/7000 kr. í skála 6000/8000 kr.


26.8. - 28.8. Afmælisferð í Bása 
Brottför kl. 20:00. 0508HF06 
Þrjátíu ára afmæli Útivistar fagnað í Básum. Fjölbreytt dagskrá með göngum, leikjum, hátíðardagskrá, grilli, varðeldi og kvöldvöku.
Verð m.v. tjald í Básum 5000/7000 kr. í skála 6000/8000 kr.


LENGRI FERÐIR
21.8. - 25.8. Sveinstindur-Strútur (5 dagar) 
Brottför kl. 08:30. 0508LF12
Djúpblátt fjallavatn, sandar, mosabreiður, jökulá, hraunskúlptúrar, tært lindarvatn, heitt fjallabað, jökulganga, fossar, skriðjökull, grónir melar, birkivaxið kjarr, góður félagsskapur. Hvað meira er hægt að biðja um?  Allt þetta er innifalið í tveimur samsettum ferðum, eins konar afmælispakka.  Sú fyrri liggur um Sveinstind-Skælinga og áfram Strútsstíg í skálann undir Strút en þar má bæði ljúka ferð, byrja eða taka hvíldardag og halda svo áfram.  Óvenjulegt sjónarhorn yfir Mælifellssand, Kaldaklof og Emstrur fæst þegar farið er upp á Sléttjökul Mýrdalsjökuls og gengið fyrir upptök Bláfjallakvíslar og Innri-Emstruár að Entujökli, sem er eitt fjölmargra leyndarmála Fjallabaksins.  Eftir að hafa gist í Botnum verður arkað í Bása – leiðarval ræðst af veðri og áhuga ferðalanga – og endað í grilli og tilheyrandi fjöri í Básum í tilefni 30 ára afmælis Útivistar. 
Verð 18000/20000kr.

25.8. - 28.8. Strútur-Básar (4 dagar)   ]
Brottför kl. 08:30. 0408LF16
Í þessari ferð eru tvær flugur slegnar í einu höggi og vinsælu gönguleiðirnar um Sveinstind – Skælinga og Strútsstíg sameinaðarÍ þessari ferð eru tvær flugur slegnar í einu höggi og vinsælu gönguleiðirnar um Sveinstind – Skælinga og Strútsstíg sameinaðar. Sjá nánari lýsingu í ferðinni hér að ofan. Verð 16000/18000 kr.