Skáli Útivistar í Stóragili á Skælingum var endurbyggður af Útivistarfélögum 1996-1997, en þar var fyrir gamall gangnamannakofi sem Skaftártungu-bændur voru hættir að nota. Umhverfið er stórkostlegt en stórir hraundrangar sem minna einna helst á lystigarð eru í næsta nágrenni. Frá skálanum er stutt ganga í Hólaskjól, en ákjósanlegar dagsgöngur eru m.a. á Uxatinda eða Gjátind. Torfær akleið er frá vegi að Gjátindi að skálanum. Húsið er kynt með litlum olíuofni og er búið dýnum og gashellu, en án borðbúnaðar. Vatn er sótt í læk skammt frá húsinu. Húsið er ekki einangrað og hentar því ekki til vetrarferða. Húsið rúmar 16 manns. GPS staðsetning er N 63°58.849´ W 18°31.319´.

Myndirnar hér að neðan voru teknar þegar skálinn á Skælingum var endurbyggður á árunum 1996-1997.  Marrit Meintema tók myndirnar. Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu.