Skálinn á Fimmvörðuhálsi var endurreistur af sjálfboðaliðum Útivistar 1990-1991. Fyrir var skáli Fjallamanna sem var orðinn ónýtur, en þeir höfðu gefið Útivist réttindi sín varðandi hann. Vert er að hafa minningu Fjallamanna í heiðri sem frumkvöðla í fjallamennsku og ferðalögum um hálendið. Hægt er að aka að Baldvinsskála, aðeins neðar á Hálsinum, en þaðan er um 30 – 40 mínútna gangur að Fimmvörðuskála, sem stendur á háhálsinum, skammt vestan hinnar stikuðu slóðar milli Skóga og Þórsmerkur. Eykur skálinn á öryggi ferðamanna um Fimmvörðuháls en er einnig ákjósanlegur áfangastaður á göngu yfir Hálsinn. Ennfremur er hægt að halda þar til einhverja daga og fara í ferðir út frá skálanum. Fimmvörðuskáli er hitaður með olíuvél og þar eru nauðsynlegustu eldunaráhöld og borðbúnaður. Salernismálum skálans er háttað með sérstökum hætti vegna þess að útilokað er að koma fyrir rotþró og ferðamenn eru beðnir um að fara að þeim reglum sem upp eru settar. Rétt er að hafa það í huga að ekki er alltaf rennandi vatn á svæðinu og síðari hluta sumars er erfitt að taka snjó til bræðslu. Skálinn rúmar 23. GPS staðsetning er N 63°37.320 W 19°27.093

Hér að neðan gefur að líta myndir sem teknar voru af Jóni Sigurðssyni þegar skálinn var endurreistur af Útivistarfélögum. Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu.