|
|
|
Ferðafélagið Útivist
Opið alla virka daga 12 -17 Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími: 562 1000 utivist@utivist.is |
Fljótlega eftir stofnun Útivistar var farið að huga að byggingu eigin skála í Þórsmörk. Að ráði varð að byggja á Goðalandi. Þar með væri einn skáli framan við Krossá og myndi það auka öryggi, auk þess sem það auðveldaði aðgang að stórkostlegu göngulandi. Básar höfðu fram að því verið nánast ónumdir, aðeins smalar og einstaka heimamenn undan Eyjafjöllum og af Rangárvöllum þekktu þessa einstöku paradís. Stóri skálinn í Básum var byggður á árunum 1980 og 1981 og litli skálinn fljótlega á eftir. Á miðjum níunda áratugnum var síðan byggt stórt eldhús og borðsalur við stóra skálann. Strax við landnám Útivistar var farið að byggja upp aðstöðu á tjaldsvæðum.
Síðan hefur jafnt og þétt verið unnið í sjálfboðavinnu að endurbótum á húsum og tjaldsvæðum á Goðalandi. Útivist hefur gefið út göngukort með leiðarlýsingum um Þórsmörk og Goðaland en á Goðalandi er úrval gönguleiða, hvort heldur sem menn kjósa auðvelda göngu eða að horfa til tindanna. Á sumrin er rennandi vatn og vatnssalerni við skálana og víða á tjaldstæðunum. Skálarnir eru kynntir með olíueldavélum og rafstöðin Básabína nýtir vatn úr bæjarlæknum til ljósa. Í húsunum er gistirými fyrir um 80-90. Skálaverðir eru í Básum frá því snemma í maí og fram í október.
GSM 893-2910 hjá skálaverði í Básum
GPS staðsetning er N 63°40,559' W 19°29,014'. Segja má að í Básum slái hjarta Útivistar.
Áhugavert lesefni tengt Básum
Veðrið í Básum
Útivist í Básum
Skáli byggður í Básum
Básalækurinn virkjaður
Leiðarlýsing inn að Goðaland
Þjóðsögur og sagnir