Næturganga Útivistar yfir Fimmvörðuháls hefst á BSÍ kl.17:00 á föstudegi. Ekið er að Skógum þar sem gangan hefst hjá hinum tignarlega Skógafossi. Brekkan upp með fossinum er nokkuð á fótinn og heppileg til að hita vöðvana fyrir gönguna, en eftir það er nokkuð aflíðandi hækkun upp á Hálsinn.