Horn í Horn frá Eystra Horni að Jökulsá á fjöllum (Upptyppingum) - FULLBÓKAÐ

Dags:

þri. 16. júl. 2024 - mið. 24. júl. 2024

Brottför:

  • Tjald

ATH!. Fullbókað í ferðina, sendið póst á utivist@utivist.is til að fara á biðlista.

Á næstu fjórum árum verður Horn í Horn aftur á dagskrá, þvert yfir landið frá suðaustri til norðvesturs. Einn leggur verður genginn á hverju sumri og mun hver leggur taka átta til níu daga. Ferðin hefst við Eystra-Horn sumarið 2024 og endar í Hornvík 2027. Gist verður í skálum þar sem þeir standa til boða en annars staðar er gert ráð fyrir gistingu í tjöldum. Ferðin verður trússuð eftir því sem við verður komið. Þessi ganga var á dagskrá hjá Útivist árin 2016 – 2019 og verður nú endurtekin. Langleiðin sem er frá suðvestri til norðausturs hefur verið þess á milli og þannig gefst tækifæri til að krossa landið.

 

Fyrsti leggur, sumar 2024:

Þátttakendur koma sér sjálfir að Höfn í Hornafirði þar sem ferðin hefst að morgni dags 16. júlí. Hópnum er ekið að upphafsstað göngunnar. Áætlaðar dagleiðir eru hér að neðan en rétt er að taka fram að þær geta tekið breytingum.

Dagur 0, 15.júlí: Ferðadagur Rúta frá Reykjavís

Dagur 1, 16.júlí: Eystra-Horn – Smiðjunes í Lóni                               25 km

Dagur 2, 17.júlí: Smiðjunes – Eskifell (göngubrú) – Múlaskáli við Kollumúla 23 km

Dagur 3, 18.júlí:  Múlaskáli – Tröllakrókar – Egilssel við Kollumúlavatn        10 km

Dagur 4, 19.júlí:  Egilssel – Vesturdalur – Geldingafellsskáli                20 km

Dagur 5, 20.júlí:  Geldingafellsskáli – Eyjabakkafoss                          22 km 

Dagur 6, 21.júlí:  Eyjabakkafoss – Nálhúsahnjúkar – Grjótá                23 km

Dagur 7, 22.júlí:  Grjótá – Hálslón – Laugarvalladalur                        22 km

Dagur 8, 23.júlí:  Laugarvalladalur – Þorlákslindahryggur                   23 km

Dagur 9, 24.júlí:  Þorlákslindahryggur – brú á Kreppu – Upptyppingar         18 km

Dagur 10, 25.júlí: Ferðadagur frá Jökulsá á Fjöllum að Mývatni

 

 Frá Mývatni fer fólk á eigin vegum heim á leið. Þessi fyrsti leggur langleiðarinnar Horn í Horn er um einstakt göngusvæði meðfram austanverðum Vatnajökli og norður fyrir hann.

Kynningarfundur verður haldinn 25. janúar 2024
Staðsetning er á skrifstofu Útivistar, Katrínatúni 4, jarðhæð kl. 17:15

Fararstjóri er Hrönn Baldursdóttir

Verð 145.000 kr.

Nr.

2407L10