Dags:
fös. 10. jún. 2022 - sun. 12. jún. 2022
Brottför:
Kl. 17:00 frá Hálendismiðstöðinni í Hrauneyjum
Þessi viðburður er liðinn.
Þar sem fullt var í ferðina á Vatnajökul í byrjun maí setjum við á dagskrá aukaferð í júní. Ferðin er beint í kjölfar vorferðar Jöklarannsóknafélagsins og oft eru hinar skemmtilegustu aðstæður á jöklinum á þessum tíma.
Ekið frá Hrauneyjum í mildri vorbirtunni sem leið liggur í hinn frábæra skála Jöklarannsóknarfélagsins í Jökulheimum. Snemma á laugardegi tökum við glímuna við jökulinn og stímum að Grímsfjalli með viðkomu á Pálsfjalli. Gufubaðið og grillið tekið af fullri alvöru. Eftir indælan nætursvefn í einum mest sjarmerandi skála á Íslandi, verður lagt af stað í morgunroðanum áleiðis heim. Hamarinn og fleiri áhugaverðir staðir heimsóttir á leiðinni, allt eftir veðri.
Fararstjóri: Gylfi Arnbjörnsson