Dags:
sun. 27. mar. 2022
Brottför:
kl. 09:00 frá Mjódd
Þessi viðburður er liðinn.
Sunnudaginn 27. mars verður farið í árlega afmælisgöngu á Keili. Keilir er áberandi í fjallahring höfuðborgarsvæðisins fyrir pýramídalögun sína. Fyrsta ferð Útivistar var á þetta fjall og síðan hefur verið gengið á það á hverju ári eða í meira en 40 ár.
Vegalengd 8-10 km. Hækkun 200 m. Göngutími 4 klst.
Til að taka þátt í ferðum Útivistar þarf að gerast félagsmaður, en þeir sem ekki eru þegar félagsmenn býðst að greiða félagsgjald kr. 8.400 og fá þá félagsskírteini og fyrstu dagsferðina í kaupbæti.