Dags:
fös. 26. nóv. 2021 - sun. 28. nóv. 2021
Þessi viðburður er liðinn.
Aðventuferðirnar í Bása eru alltaf frábær skemmtun bæði fyrir börn og fullorðna. Vetrarríkið skartar sínu fegursta og einhverjum sögum fer af því að jólasveinum bregði fyrir í fjöllunum og jafnvel fleiri meðlimum þeirrar fjölskyldu. Þegar skyggja tekur verður sest að jólahlaðborði og blásið til kvöldvöku.
ATH.: Við viljum ekki að aðventuferðin verði vettvangur hópsmit og því förum við þess á leit að þátttakendur fari í hraðpróf fyrir ferð. Rétt er að miða við að fara í prófið í fyrsta lagi miðvikudag fyrir ferð.
50% afsláttur fyrir börn 7-16 ára og frítt fyrir yngri en 7 ára.
Fararstjórar eru Guðrún Hreinsdóttir og Marrit Meintema.