Dags:
lau. 11. júl. 2020 - mán. 13. júl. 2020
Brottför:
frá BSÍ kl. 9:00
Þessi viðburður er liðinn.
Gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls er mörgum kær, enda ekki óalgengt að fyrstu kynnin af útivist séu í Fimmvörðuhálsgöngu. Í þessari ferð er lögð áhersla á að hafa rúman tíma í gönguna þannig að hægt sé að njóta náttúrunnar í rólegheitum. Lagt af stað að morgni dags á laugardegi og gengið frá Skógum á Fimmvörðuháls og gist þar í skála Útivistar á miðri leið. Sunnudag verður gengið í Bása og gist þar seinni nóttina. Á mánudegi verður farið í létta göngu á Goðalandi áður en haldið er heim á leið.
Mögulega uppselt í ferðina. Vinsamlegast hafið samband á skrifstofu Útivistar til þess að fara á biðlista.