Dags:
fös. 14. ágú. 2015 - sun. 16. ágú. 2015
Brottför:
Þessi viðburður er liðinn.
Fjörtíu ára afmæli Útivistar fagnað í Básum. Fjölbreytt dagskrá með göngum, hátíðardagskrá, varðeldi og kvöldvöku. Ekið á eigin vegum í Bása.
Hægt er að velja um eftirfarandi göngur:
- Hestagötur og Foldir. Brottför úr Básum kl. 10:00
- Útigönguhöfði. Brottför úr Básum kl. 10:00
- Rjúpnafell. Brottför úr Básum kl. 9:00
Sjálf afmælisveislan hefst svo kl 16 með kökuhlaðborði frá Kaffinefnd Útivistar, þeirri sömu og hefur veg og vanda af margrómuðum veitingum á myndakvöldum. Litið verður yfir farinn veg í 40 ára sögu félagsins.
Hver og einn sér um sinn mat en kveikt verður upp í grilli á staðnum og hægt að hafa afnot af því. Um kvöldið verður varðeldur og söngur eins og Útivistarfólki sæmir.
Innifalið í verði er þátttaka í göngum og dagskrárliðum og gisting í skála.
Verð 13.000 kr.
Verð 7.000 kr.