Dags:
lau. 12. mar. 2022 - sun. 13. mar. 2022
Brottför:
Kl. 08:00 frá Olís við Rauðavatn
Þessi viðburður er liðinn.
Farið verður frá Reykjavík að morgni laugardags og ferðinni heitið á Kjöl. Á Kjalvegi verður afleggjarinn til austurs í átt að Kerlingafjöllum ekinn og stefnan tekin á Gýgjarfoss. Í Fjöllunum verður síðan áð og notið. Að kaffisopa loknum liggur leiðin til austurs fyrir norðan Snækoll og Loðmund, yfir Illahraun í átt að Setri, þar sem gist verður um nóttina. Á sunnudagsmorgni liggur leiðin í suður undir Þverbrekkum í átt að Kisubotnum. Eftir vaðið á Kisu verður farið um sunnanverð Kerlingarfjöll með viðkomu í Klakksskála og Kerlingagljúfri. Leppistungurnar verða eknar og áð í Svínárnesi.
Fararstjóri: Gylfi Arnbjörnsson