Jeppaferðir

Síun
  • Dags:

    fim. 25. apr. 2024 - sun. 28. apr. 2024

    Brottför:

    • Skáli

    FULLBÓKAÐ

    Hin stórskemmtilega árlega vorferð um Vatnajökul er ein vinsælasta ferð jeppadeildarinnar. Ferðinni er nú heitið á austurjökulinn. Ferðin hefst að morgni fimmtudags frá Smyrlabjörgum en gisting nóttina áður er á ábyrgð hvers og eins. Ekið verður á Goðabungu og ef veður og tími vinna með okkur verður ekið um öræfin austur af Vatnajökli með viðkomu í Egilsseli og Tröllakrókum. Kannaðar verða leiðirnar á Þrándarjökul og Hofsjökul eystri. Farið verður niður Hraun, yfir Eyjabakkastífluna og um Snæfellsfjallgarðinn í Snæfellsskála, þar sem verður gist. Á föstudeginum verður dagurinn tekin snemma og ekið í Kverkfjöll þar sem farið verður í bað í Hveragili. Á laugardeginum verður svo ferðinni haldið áfram á Grímsfjall þar sem farið er í gufubað og grillað. Gist verður þar um nóttina. Sunnudagurinn verður notaður til heimferðar frá Grímsfjalli, hefðbundna leið um Jökulheima í Hrauneyjar þar sem ferðinni lýkur.

    Fararstjóri:

    Sveinn Sigurður Kjartansson

    • Verð:

      43.000 kr.
    • Nr.

      2404J01
    • ICS
  • Dags:

    fös. 3. maí 2024 - sun. 5. maí 2024

    Brottför:

    • Skáli

    Vatnajökull heillar alltaf og ef vorið verður kalt og hagstætt til jöklaferða þá er um að gera að nota tækifærið. Ekið frá Hrauneyjum í mildri vorbirtunni sem leið liggur í hinn frábæra skála Jöklarannsóknarfélagsins í Jökulheimum. Snemma á laugardagsmorgni tökum við glímuna við jökulinn og stímum að Grímsfjalli með viðkomu á Pálsfjalli. Gufubaðið og grillið tekið af fullri alvöru. Eftir indælan nætursvefn í einum mest sjarmerandi skála á Íslandi, verður lagt af stað í morgunroðanum áleiðis heim. Hamarinn og fleiri áhugaverðir staðir skoðaðir á leiðinni, allt eftir því sem veður leyfir.

    Farastjóri: Gylfi Jónu Arnbjarnarson

    • Verð:

      32.000 kr.
    • Nr.

      2405J01
    • ICS
  • Dags:

    lau. 20. júl. 2024 - þri. 23. júl. 2024

    Brottför:

    • Tjald

    Fjögurra daga jeppaferð um slóðir norðan Vatnajökuls. Ekið um Búðarháls og fossinn Dynkur heimsóttur. Þaðan er haldið sem leið liggur í Nýjadal þar sem gist er fyrstu nóttina. Frá Nýjadal er haldið austur yfir Skjálfandafljót og um Laufrandarleið í Réttartorfu þar sem gist verður. Úr Réttartorfu liggur leiðin að Mývatni þar sem gefst færi á að fylla eldsneytisgeyma áður en ekið er að Heilagsdal þar sem gist er þriðju nóttina. Þaðan liggur leiðin um Krákárbotna í Dyngjufjalladal, en dagurinn endar í Herðubreiðarlindum. Lok formlegrar ferðar eru í Herðubreiðarlindum en þaðan er hægt að halda þægilega leið til byggða eða halda áfram að njóta einstakrar náttúru á hálendinu norðan Vatnajökuls.

    Ferðin er skipulögð sem tjaldferð en jafnan er gist í nágrenni við fjallaskála og geta þeir sem það kjósa frekar pantað sér gistingu í skálunum.

    Fararstjóri: Skúli H. Skúlason

    • Verð:

      20.000 kr.
    • Nr.

      2407J01
    • ICS
  • Dags:

    fös. 20. sep. 2024 - sun. 22. sep. 2024

    Brottför:

    • Skáli

    Þessi ferð er fyrir óbreytta eða lítið breytta jeppa. Farið er inn á Fjallabak um Keldur og inn fyrir Hafrafell meðfram Eystri Rangá upp í Dalakofa þar sem gist verður í skála Útivistar. Á laugardeginum er ferðinni heitið um Syðra Fjallabak, eftir stutt stopp við nafnlausa fossinn í Markarfljótinu. Komið verður við hjá Álftavatni og í Hvanngili og kíkt á gljúfrin þar sem Kaldaklofskvísl fellur í Markárfljótið á leið okkar í Strút, þar sem gist verður í skála Útivistar. Á sunnudeginum verður ekið austur fyrir Mælifellshnjúk og farið yfir Brennivínskvísl, yfir Hólmsá og í Álftárvatnakrók.

    Fararstjóri: Gylfi Jónu Arnbjarnarson.

    • Verð:

      20.000 kr.
    • Nr.

      2409J01
    • ICS
  • Dags:

    lau. 5. okt. 2024 - sun. 6. okt. 2024

    Brottför:

    • Skáli

    Hin forna leið frá Svarthöfða í suðurenda Vonarskarðs að Jökulheimum er einhver skemmtilegasta jeppaleið sem til er. Glíman við brattar brekkur og straumharðar ár gleymist fljótt þegar hið stórkostlega útsýni af hæstu hæðum leiðarinnar blasir við. Farið að morgni laugardags í Hrauneyjar þar sem fyllt er á tanka. Þaðan verður haldið norður Sprengisandsleið að Svarthöfða við norðurenda Hágöngulóns. Gist verður í skála Jöklarannsóknarfélagsins í Jökulheimum. Möguleiki á að aka um Breiðbak á heimleið.

    Farastjóri: Sveinn Sigurður Kjartansson

    • Verð:

      20.000 kr.
    • Nr.

      2410J01
    • ICS
  • Dags:

    lau. 9. nóv. 2024 - sun. 10. nóv. 2024

    Brottför:

    • Skáli

    Ferðin hefst í Hálendismiðstöðinni Hrauneyjum. Farið inn í Landmannalaugar, þaðan um Fjallabaksleið nyrðri, inn á Mælifellssandi og í Strútsskála. Tekið tékk á Strútslaug og umhverfi, og tánum stungið í bað ef aðstæður eru hagstæðar. Á sunnudeginum verður farið vestur Mælifellsand og niður í Fljótshlíð eða um Mýrdalsjökul ef færi er gott.

    Farastjóri: Þorsteinn Pálsson

    • Verð:

      20.000 kr.
    • Nr.

      2411J01
    • ICS


1 / 19

Skælingar