Útivistarræktin
 
Góð ganga er allra meina bót. Lungun fyllast af hreinu lofti og líkaminn fyllist af súrefni. Hugurinn hreinsast og hugsun verður skýr. Líkamlegt sem andlegt atgervi styrkist og þróttur til að takast á við skemmtilegar göngur og ferðalög eykst. Ávinningur af reglulegum gönguferðum er umtalsverður.
 
Útivistarræktin hefur verið starfrækt innan Útivistar um árabil og hefur mælst mjög vel fyrir. Gengið er þrisvar í viku og er þátttaka mjög góð. Með þátttöku í Útivistarræktinni fæst góð líkamsrækt og um leið hentugur undirbúningur fyrir krefjandi ferðir. Það besta er þó ótalið og það er að þátttaka í Útivistarræktinni kostar ekkert og allir eru velkomnir.
 
Þó svo þátttaka í Útivistarræktinni sé ókeypis er þó rétt að geta þess að á sumrin er sameinast í bíla og ekið eitthvað út fyrir borgina til að ganga. Það er sjálfsagt mál að farþegar í bílum taki þá þátt í eldsneytiskostnaði. Því skulu þátttakendur í þeim ferðum hafa 500 krónur í lausu til að leggja fram sem sinn hluta í eldsneyti.
 
Á mánudögum er gengið um Elliðaárdalinn. Lagt er af stað kl. 18:00 frá Toppstöðinni (stóra brúna húsinu í Elliðaárdalnum, ekið frá Ártúnsbrekku). Gengið er upp í gegnum hólmann í ánni og vestan megin við hana upp að Vatnsveitubrú, þar sem farið er austur yfir ána.  Áð er við Árbæjarlaug og hópurinn þéttur ef teygst hefur úr honum. Síðan er haldið niður með Elliðaám að austan, farið aftur inn í hólmann við félagsheimili Rafveitunnar og gönguferðinni lýkur á sama stað og hún hófst um það bil klukkutíma og fimmtán mínútum fyrr.
 
Miðvikudaga er einnig gengið um Elliðaárdalinn, brottför frá sama stað og á mánudögum en nú kl. 18:30. Í miðvikudagsgöngunni er hins vegar farið hægar yfir og hentar því vel þeim sem eru að koma sér form eða vilja rólegri göngu. Frá apríl og fram í september breytast miðvikudagsgöngurnar með þeim hætti að þá er farið í göngu í nágrenni borgarinnar en sameinast í bíla við Toppstöðina. Eins og getið er um hér að ofan leggja farþegar í bílum til hlutdeild í eldsneytiskostnaði og er viðmiðun nú 500 krónur á mann. Þessar göngur eru kynntar sérstaklega í ferðaáætlun.
 
Á fimmtudögum miðast göngurnar við að veita góða áreynslu og reyna enn frekar á þol göngumanna.  Því er gengið á Úlfarsfell og þannig fæst ríflega 200 metra hækkun.  Hist er kl. 18:00 við skógræktina undir Úlfarsfelli (við Vesturlandsveg á móts við Korpúlfsstaði).  Meðan skammdegið er hvað mest getur verið æskilegt fyrir þátttakendur að hafa ljós meðferðis.

Allir velkomnir í Útivistarræktina og ekkert þátttökugjald.