Velkomin að myndasögum Útivistar

Hér er að finna myndir, ferðasögur og frásagnir úr starfi félagsins. Ferðasagan er vettvangur fyrir þá sem ferðast með Útivist eða taka annan þátt í starfi félagsins að senda inn myndir og frásagnir og gefa þannig öðrum hlutdeild í ánægjulegri ferð, eða starfi . Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu. Smelltu hér ef þú sérð ekki myndirnar eða ef þú færð ekki stærri myndir.

Þeir sem hafa áhuga á að senda myndir úr ferðum, sem birta má á heimasíðu Útivistar eru vinsamlega beðnir um að senda þær á myndirutivist@gmail.com

Ef myndasöfnin birtast ekki er það líklega vegna þess að það vantar nýjustu útgáfu af Macromedia Flash Player sem fæst ókeypis á macromedia.com.

         

_______________________________________________________________________

31. júlí 2010 | 00:00

Snæfellsjökull 4. júlí 2010

Í byrjun júlí gekk stór hópur á Snæfellsjökul. Veðrið var milt en göngugarpar voru ekki sérlega heppnir með útsýni því þoka var mest allan tíma. Við toppinn var hópurinn kominn ofar skýjum og þar var áð áður en farið var niður aftur. Stefán Birgisson var fararstjóri. Guðbjartur Guðbjartsson sendi myndirnar.
Myndir frá 2009 má skoða hér.