Velkomin að myndasögum Útivistar

Hér er að finna myndir, ferðasögur og frásagnir úr starfi félagsins. Ferðasagan er vettvangur fyrir þá sem ferðast með Útivist eða taka annan þátt í starfi félagsins að senda inn myndir og frásagnir og gefa þannig öðrum hlutdeild í ánægjulegri ferð, eða starfi . Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu. Smelltu hér ef þú sérð ekki myndirnar eða ef þú færð ekki stærri myndir.

Þeir sem hafa áhuga á að senda myndir úr ferðum, sem birta má á heimasíðu Útivistar eru vinsamlega beðnir um að senda þær á myndirutivist@gmail.com

Ef myndasöfnin birtast ekki er það líklega vegna þess að það vantar nýjustu útgáfu af Macromedia Flash Player sem fæst ókeypis á macromedia.com.

         

_______________________________________________________________________

30. júlí 2010 | 00:00

Laugavegurinn á fjórum göngudögum 14. - 18. júlí 2010

Laugavegurinn skartaði sínu fegursta með ágætu veðri um miðjan júlí þegar 12 manna glaðlegur hópur gekk hann sér til yndisauka og upplifunar. Útsýnið var stórfenglegt alla leið og að auki sá lengstum hvar gufa steig upp úr gíg Eyjafjallajökuls ásamt smá ösku hér og hvar þegar nær dró Þórsmörk. Allir heilluðust af öllu sem fyrir augu bar, jafnt Íslendingarnir sem Danirnir þrír sem voru með í för. Gengin var hefðbundin leið og einnig farið á Söðul við Hrafntinnusker, Hvanngilshnausa ofan Hvanngils og Réttarfell á Goðalandi. Færanlegar göngubrýr voru komnar yfir Krossá gegnt Básum sem auðveldaði síðasta hluta göngunnar til muna. Vel var tekið á móti okkur í öllum skálum og það var yndislegt að koma í Bása, slá upp grillveislu og orna sér við varðeld á fögru sumarkvöldi í lok gönguferðarinnar. Fararstjóri var Fanney Gunnarsdóttir. Myndirnar tala sínu máli en þær sendi Fanney.