|
|
|
Ferðafélagið Útivist
Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími: 562 1000 Fax: 562 1001 utivist@utivist.is webmaster@utivist.is |
Velkomin að myndasögum Útivistar
Hér er að finna myndir, ferðasögur og frásagnir úr starfi félagsins. Ferðasagan er vettvangur fyrir þá sem ferðast með Útivist eða taka annan þátt í starfi félagsins að senda inn myndir og frásagnir og gefa þannig öðrum hlutdeild í ánægjulegri ferð, eða starfi . Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu. Smelltu hér ef þú sérð ekki myndirnar eða ef þú færð ekki stærri myndir.
Þeir sem hafa áhuga á að senda myndir úr ferðum, sem birta má á heimasíðu Útivistar eru vinsamlega beðnir um að senda þær á myndirutivist@gmail.com
Ef myndasöfnin birtast ekki er það líklega vegna þess að það vantar nýjustu útgáfu af Macromedia Flash Player sem fæst ókeypis á macromedia.com.
_______________________________________________________________________
Nýjar myndir hafa bæst við. Guðbjartur Guðbjartsson sendi þær.
Kristján E. Þórðarson sendi lokatölur úr öllum ferðunum sem má skoða hér.
Leiðarlýsing er svo miklu meira en að ganga frá A til B því dúlúðin umlukti okkur í Langleiðarhópnum í síðasta áfanganum, síðasta daginn, á leið okkar út að Fonti á Langanesi: Þokuslæðan og dökkbrúna hryssan sem sveif út úr þokunni eins og geislar sólarinnar til að fagna okkur og vísa veginn að vitanum við „enda götunnar“. Langþráð markmið okkar í sjónmáli – að ljúka göngunni yfir landið sem hófst í mars 2008.
Örfnefnum hefur verið raðað upp á festina sem er fagurlega skreytt blómaheitum á borð við fjalldalafífil, flagahnoðra, músareyra, lyfjagras, geldingahnapp og holtasóley, svo eitthvað sé nefnt. Blómadropar hafa verið sötraðir af blöðum maríustakks, beint og milliliðalaust. Og heiðlóan sjálf hefur sungið fyrir okkur dirrindí, spóinn ollið og hrossagaukurinn spilað á þyt lofsins . . . Fegurðin ofar hverri kröfu hvert sem litið var, í allri sinni dýrð að utan sem innan og við auðmjúku ferðalangarnir 27 nutum og þáðum af gnægtarbrunni náttúrunnar og menningarvitans Maríu Berglindar sem óþreytandi bar í ungana sína fróðleik um mannlíf og náttúru.
Hópurinn hittist í Ásbyrgi sunnudaginn 20. júní í mildu veðri. Framundan 6 daga ganga. Hver hafði sinn háttinn á en gangan skyldi hefjast kl. 9.00 að morgni mánudagsins 21. júní. Galvaskur hópur lagði á brúna yfir Jökulsá á Fjöllum og þaðan upp fyrsta ásinn áleiðis að Bjarnastöðum, því næst var stefnan tekin austur yfir Laufskálafjallgarðinn að Laufskálum. Næsta morgun var haldið í austurátt, gengið um mýrarsvæði sunnan Svalbarðsnúps, yfir Sandá og Hölkná og tjaldað við Grímúlfsá. Á þriðja degi var haldið niður með Hafralónsá, niður á þjóðveg og honum fylgt á Þórshöfn þar sem æfðar hendur slógu upp tjaldbúðum. Frá Þórshöfn var haldið að eyðibýlinu Hóli, áfram vestur fyrir Hlíðarhnjúk og Nónfjall að Eiði þar sem ferðalangar fundu tjaldstæði á hrafnaklukkuengi sem lóuþræll hafði eignað sér og sínum. Morguninn eftir var hópnum skipt og lá leiðin annars vegar upp á Heiðarfjall að leifum ratstjárstöðvarinnar og hins vegar fyrir fjallið. Þegar hópurinn hafði sameinast á ný var austurströnd Langaness þrædd að Skálum þar sem töluverð byggð var á fjórða og fimmta áratugnum. Á lokadegi göngunnar var áfram gengið með austurströnd Langaness, með Atlantshafið á aðra hönd og Norður-Íshafið á hina. Lokamarkið í sjónmáli, vitinn á Fonti í fylgd prinsessu í álögum, hryssunar fallegu. Bros á vörum, blik í augum. Að Fonti var komið kl. hálftvö rúmum tveimur árum eftir að lagt var upp frá Reykjanestá eða 32 göngudögum og 732 kílómetrum síðar. Kristinn Dulaney og María Berglind voru fararstjórar á síðasta leggnum eins og á mörgum öðrum.
Guðrún Guðmundsdóttir sendi ferðasögu.
Kristján E. Þórðarson sendi myndirnar. Grétar W. Guðbergsson er búinn að setja myndir á heimasíðu sína og þær má skoða hér: dagur 1 og 2, dagur 3 og 4 og dagur 5 og 6. Ferðasögu hans má lesa hér. Arnbjörn Jóhannesson er búinn að setja myndir á heimasíðu sína og þær má skoða hér.
Myndir frá 2008 og 2009 má skoða hér:
1. áfangi var farinn tvisvar og má skoða hér og hér.
2. áfangi, 3. áfangi, 4. áfangi, 5. áfangi, 6. áfangi, 7. áfangi, 8. áfangi, 9. áfangi, 10. áfangi, 11. áfangi og 12. áfangi.